Færslur í flokknum: Förðun

FÖRÐUN: Uppáhalds make-up artistarnir mínir á netinu

Í deginum eru 24 klukkutímar. Stundum væri þægilegt ef þeir væru aðeins fleiri. Ég veit hvað ég myndi gera við þessa aukalegu klukkutíma.

Einhver myndi kannski taka til í fataskápnum, hreinsa til í garðinum, bjarga fólki úr sjálfheldu uppi á fjallstindum. Ég myndi skoða make-up blogg. "Göfugri" iðja yrði það ekki. Það skemmtilegast sem ég geri er að skoða blogg-síður hjá sminkum. Úr myndatökum, dagsdaglegar farðanir, vangaveltur um innihald og endingu, notkun og bestu ráðin. Mikið af þessu hef ég lært að gera áður, séð hundraðfalt margar útgáfur af því hvernig skuli setja á sig eye-liner. Ég gæti talist útskrifuð úr förðunarskóla internetsins, verst að það er erfitt að setja það á ferilskrána...

Hér er nokkrar af mínum uppáhalds bloggum og you-tube meisturum sem ég fylgist reglulega með:

Linda Hallberg

Ung, sænsk og brjáluð með pensilinn. Ófeimin við að prufa nýja hluti og litadýrðin sem hún skapar er mögnuð. Svo fer hún bara heim í strætó og drekkur kamillute með þá allra svakalegustu skyggingar sem ég hef séð. Uppáhalds viðverustaðurinn minn á internetinu. Linda bloggar hér LH

Pixiwoo

Systurnar Samantha og Nicola eru báðar farsælir make-up artistar sem hafa unnið og starfað með öllum sem heita frægir. Þær sameinast í Pixiwoo og senda frá sér kennslumyndbönd á youtube. Þar taka þær að sér  mismunandi útlit, frá því hvernig eigi að gera vellandi sár yfir í að endurgera útlitið sem Angelina Jolie sportaði á rauða dreglinum. Þær eru yndislegar og skemmtilegar en ávallt fagmannlegar. Þarna eru magnaðir hæfileikar. Þær halda líka úti heimasíðu sem er gaman að skoða og lesa nánar um hvað þær eru að gera. Hér er kynningarmyndband með samatekt af þeirra vinsælustu útlitum.

Kandee Johnson

Hún heitir Kandee (borið fram Candy) og hún elskar allt bleikt, glimmerað og glossað. Hún er eiginlega bara kærleiksbjörn og yndislegt að fylgjast með henni. Hún er einstæð 4-barna móðir sem leggur mikið á sig til að gera make-up myndbönd og gefa innsýn inn hið fjölbreytilega starf make-up artista í Hollywood þar sem hún hefur starfað lengi. Kandee hfur dálæti af því að klæða sig upp í búninga og er Gangnam-style lúkkið hennar eitt það fyndnasta og flottasta sem ég hef séð. Vert er að fylgjast með Kandee. Bloggið hennar má finna hér. Hér breytir Kandee sér í Marie Antoinette

 

Ef þið hafið svo ennþá meiri frítíma verð ég að mæla með Pinterest. Þar gæti ég setið og rúllað í gegnum make-up síðuna dögum saman. Ég veit ekki hvort ég myndi standa upp til að fara á klósettið, líklegast ekki. Pinterest má finna hérna.

FÖRÐUN: Uppáhalds make-up artistarnir mínir á netinu

Screen Shot 2013-05-23 at 08.00.39

Í deginum eru 24 klukkutímar. Stundum væri þægilegt ef þeir væru aðeins fleiri. Ég veit hvað ég myndi gera við þessa aukalegu klukkutíma. Einhver myndi kannski taka til í fataskápnum, hreinsa til í garðinum, bjarga fólki úr sjálfheldu uppi á fjallstindum. Ég myndi skoða make-up blogg. „Göfugri“ iðja yrði það ekki. Það skemmtilegast sem ég…

CANNES: Svart/hvítur klæðnaður og berjarauðar varir áberandi

Emma Watson

Cannes kvikmyndahátíðin er enn einn vettvangurinn fyrir kvikmyndastjörnur til að fara í sitt fínasta púss. Persónulega hefur mér þótt stjörnurnar ívið smekklegri í fatavali þar heldur en á Óskarsverðlaunahátíðinni. Það er eins og evrópska borgin fái þau til að tóna sig aðeins niður í „extravaganza“ sem tíðkast í Ameríkunni. Í ár var svartur og hvítur…

VIÐTAL: Dýrleif Sveinsdóttir gefur 8 góð ráð fyrir förðun

Screen Shot 2013-05-21 at 05.48.46

Dýrleif Sveinsdóttir er 23 ára starfsstúlka hjá MAC, lærði í Snyrtiakademíunni og hefur farðað í síðustu tveimur tískuvikum í Kaupmannahöfn þar sem hún farðaði m.a. fyrir Vivienne Westwood. Dýrleif var svo góð að svara nokkrum förðunar tengdum spurningum fyrir Pjattrófur:  1. Hvað eigum við allar að hafa í snyrtibuddunni? Hyljara, maskara og sólarpúður/kinnalit. 2. Hvað…

SNYRTIVÖRUR: Uuppáhalds sólarpúður Kim Kardashian!

Screen Shot 2013-05-16 at 22.57.57

Hingað til hef ég alltaf notað sólarpúður með shimmeri  en ég prófaði nýlega sólarpúður frá Smashbox sem er matt… … og núna verð ég að viðurkenna að mér finnst það mun flottara en sólarpúður með shimmeri! Púðrið heitir BRONZE LIGHTS, kemur frá nýja uppáhaldinu mínu SMASBOX og liturinn heitir Suntan matte. Það er frekar dökkt…

SNYRTIVÖRUR: Fjólublár gel eye-liner frá SMASHBOX

smash

Ég er búin að vera alveg Smashbox óð uppá síðkastið, alltaf gaman að uppgvöta nýtt merki sem maður virkilega fílar. Ég fékk mér nýlega gel eyeliner frá þeim sem er alveg æðislegur! Það er smá kúnst að læra að nota gel eyeliner en æfingin skapar meistarann og ég er orðin nokkuð góð í því. Eyelinerinn…

SNYRTIVÖRUR: Even Better Compact Makeup – Nýtt frá Clinique

Clinique - Even Better Compact Makeup

Ég hef aldrei orðið fyrir vonbrigðum með farða frá Clinique enda er fyrirtækið sterkast í því að búa til farða (þ.e. púður og meik) sem jafnar út lit húðarinnar og sléttir yfirborð hennar. Even Better Compact Makeup er nýr farði frá Clinique Þetta er léttur kremfarði, inniheldur sólarvörn SPF 15, kemur í fallegu  box með góðum…

SNYRTIVÖRUR: Diorskin Nude á topp 8 lista Harper’s Bazaar

dior_spring_2013_cherie_bow_makeup_collection9

Þetta lúxuspúður frá Dior er eitt af topp átta að mati Harper’s Bazaar yfir bestu púðrin í dag. Diorskin Nude Luminous Rose Loose Powder er litlaust og létt púður sem endurkastar ljósi og endurvekur þar af leiðandi þinn ljóma í húðinni. Það er alveg tilvalið að nota púðrið yfir Nude bb kremið frá Dior, dúmpa því…

SNYRTIVÖRUR: Diorskin Nude BB Creme

SNYRTIVÖRUR: Diorskin Nude BB Creme

Dior hefur svo oft gert góða farða og Diorskin Nude BB Creme er þar engin undantekning. Einnig mæli ég með því að skoða maskarana frá þeim, hef ekki enn lent á neinum sem hefur klikkað en þeir eru margir hverjir góðir fyrir þessa þykkingu og lengingu sem sumar okkar sækjast eftir. Ég er sem sagt að…

FÖRÐUN: Glimmer á augnlokin hjá Chanel- Tilvalin partý förðun

Screen Shot 2013-03-28 at 11.19.32 PM

Haust 2013 línu Chanel fylgir einstaklega falleg og glitrandi förðun… …Augnlok fyrirsætanna voru hlaðin stóru og silfruðu glimmeri á meðan restin af förðuninni var hlutlaus á Chanel sýningu sem haldin var í París á vordögum. Húðin var höfð mött og augabrúnirnar tiltölulega skarpar. Ótrúlega fallegt að mínu mati en líklega mjög óþægilegt þar sem glimmer…

Varúð! Topp 10 hættulegustu snyrtivörurnar til að taka með á djammið

Of mikið?

Á leiðinni út, hvort sem er það er í veislu eða bara út á lífið með góðum vinum, ætlum við dömurnar oft að vera útsjónasamar og pökkum því í flýti niður nokkrum vel völdum snyrtivörum. Fullvissar höldum við út í þeirri trú um að þessi tæki og tól munu hjálpa okkur við að halda húðinni…