Færslur í flokknum: Útlit & Snyrtivörur

SNYRTIVÖRUR: Undurfögur ofnæmisprófuð naglalökk frá Clinique

Þegar sumrinu seinkar, líkt og við á höfuðborgarsvæðinu höfum fengið að finna fyrir, er ekki seinna vænna en að redda sumarstemmningunni öðruvísi en með sólinni.

Þrátt fyrir sólarleysi þá hefur veðrið verið hlýtt og því fylgir einn góður kostur: Neglurnar lifna við!

Á veturnar eru neglurnar mínar hundleiðinlegar: þunnar, viðkvæmar og þær brotna við minnsta tilefni (eitt sinn braut ég nögl með hugarorkunni einni, sönn saga). Um leið og veðrið byrjar að batna og Lóan vappar um gerist eitthvað magnað hjá nöglunum mínum -mórallinn verður allt annar. Þær vaxa hratt, styrkjast og verða hinar fínustu en þessu fagna ég á sumri hverju með því að fá mér fallegt naglalakk!

Í vor var nýja línan frá Clinique fyrir valinu.

Yfir veturinn notast ég við dökka liti og held nöglunum stuttum (enda fátt annað í boði) en úr því að neglurnar mínar eru í blóma fannst mér vel við hæfi að taka fallegan ljósbleikan lit, svo þessar nýtilkomnu löngu neglur mínar fái að njóta sín.
Nýju lökkin frá Clinique eru frábær og liturinn kom strax vel út við fyrstu umferð. Liturinn sem ég valdi ber nafnið Sweet Tooth og er pastel bleikur. Yfirleitt er raunin sú með ljóslituð naglalökk að það þarf nokkrar umferðir ef liturinn á að vera áberandi. Það kom mér mjög á óvart að þess var ekki þörf, og í þokkabót þornaði lakkið hratt og örugglega.
Sum  naglalökk eiga það til að erta mig, til dæmis ef ég naglalakka mig og fer svo eitthvað að vesenast í augunum mínum en nýju lökk frá Clinique eiga ekki að gera það. Þar sem mér finnst ekkert skemmtilegra en að gera tilraunir á sjálfri mér get ég staðfest að ég hef ekki fundið fyrir neinum óþægindum (nema þegar ég potaði í augað á mér, en það var ekki naglalakkinu að kenna, ég er bara klaufi). Lökkin koma í sautján súpersætum litum en fimm þeirra eru einungis í boði út sumarið. Ég mæli því með að þær sem eru með viðkæma húð og neglur fái sér þessi ofnæmisprófuðu naglalökk og aðrar sem vilja halda uppi sumarstuðinu, a.m.k. þangað til að sólin lætur sjá sig.      

SNYRTIVÖRUR: Undurfögur ofnæmisprófuð naglalökk frá Clinique

Clinique efsta mynd

Þegar sumrinu seinkar, líkt og við á höfuðborgarsvæðinu höfum fengið að finna fyrir, er ekki seinna vænna en að redda sumarstemmningunni öðruvísi en með sólinni. Þrátt fyrir sólarleysi þá hefur veðrið verið hlýtt og því fylgir einn góður kostur: Neglurnar lifna við! Á veturnar eru neglurnar mínar hundleiðinlegar: þunnar, viðkvæmar og þær brotna við minnsta…

SNYRTIVÖRUR: Nýtt Body Lotion frá Nivea – Fyrir dömur á hraðferð!

Screen Shot 2013-06-04 at 19.39.29

Nivea vörurnar eru í miklu uppáhaldi hjá mér þrátt fyrir að ég sé örlítill merkjasnobbari þegar kemur að vörum fyrir húðina. Nivea hefur nefninlega komið með hverja snilldina á fætur annari ár eftir ár og nú er það Body lotion sem þú berð á þig í sturtu! Hversu frábært er það? Kremið heitir In-shower Body…

ÚTLIT: Heitustu hártrendin sumarið 2013 – Fullt af myndum

Brún augu og aflitað hár

Það skemmtilegasta við tískuna í dag er hvernig við megum „næstum því“ allt um leið og það er enginn einn straumur sem allir verða að fylgja. Þetta á líka við um hártískuna en miðað við það sem er að gerast á tískupöllunum þessi misserin er allt í boði. Það sem er kannski mest áberandi er…

SNYRTIVÖRUR: Veet vax-penninn sló í gegn hjá lesendum Pjattsins!

Screen Shot 2013-05-31 at 16.07.27

Fyrir tveimur vikum gáfum við hér á Pjatt.is nokkra Veet vax penna og báðum lesendur svo að senda okkur smá reynslusögu. Óhætt er að segja að penninn hafi slegið í gegn en honum er m.a. lýst sem „Algjörri snilld“ og „Vöru sem óhætt er að mæla með“. Okkur finnst virkilega gaman að deila þessu með…

ÚTLIT: Catherine er snillingur í að gera skrautlegar neglur

Screen Shot 2013-05-29 at 15.33.49

Hvað er skemmtilegra en að vera með litríkar og skrautlegar neglur, sérstaklega yfir sumartímann. Catherine er ung frönsk/kanadísk stúlka sem flutti hingað til Íslands í desember síðastliðin en maðurinn hennar er íslenskur og kynntist hún honum þegar að hún var að ferðast um Ísland. Catherine er búin að vera að gera neglur í 4 ár…

ÚTLIT: Brjóstaminnkun eykur sjálfstraust kvenna – „Best heppnuðu aðgerðirnar“

Victoria Beckham lét fjarlægja silikon og minnka brjóst sín

Þrátt fyrir að heilla stundum sjónræna skynjun karlkynsins getur verið mjög erfitt fyrir margar konur að hafa stór brjóst. Þau geta meðal annars valdið verk í baki og hnakka sem leiðir til spennuhöfuðverkjar. Einnig geta þau valdið  verkjum í efri hluta baks og öxlum. Stórum brjóstum fylgir líka oft exem undir brjóstunum  og margar konur þjást af lélegri sjálfsímynd…

SNYRTIVÖRUR: Frábær varalitur úr vorlínu YSL

Screen Shot 2013-05-26 at 21.20.04

Í vorlínu YSL má finna fjóra varaliti sem eru sumarlegir og smart, endast lengi og ótrúlega auðveldir í notkun. Þegar ég prufaði varalitinn fyrst hélt ég að ég væri að setja á mig gloss því hann kemur í þannig umbúðum en í pakkningunni er hjartalaga pensill og það er mjög auðvelt að setja hann á…

SNYRTIVÖRUR: Þessar vörur hafa slegið rækilega í gegn

Screen Shot 2013-05-20 at 11.34.01 PM

Það er einfaldlega þannig að sumar snyrtivörur hitta í mark og aðrar ekki… …Hér kemur listi yfir nokkrar vörur sem hafa rokselst um allan heim undanfarna mánuði. Hvort sem það er góðri markaðssetningu að þakka eða bara gæðum þá hafa þessar vörur náð svo miklum vinsældum að nánast önnur hver kona hefur prófað þær. Truth Serum®…

SNYRTIVÖRUR: The Game frá Davidoff – Sexí ilmur fyrir manninn þinn

Screen Shot 2013-05-24 at 10.14.43

Ég er alveg veik fyrir góðum rakspírum – karlmenn verða ósjálfrátt svo kynþokkafullir þegar þeir lykta vel. Eruði ekki sammála? Nýjasta viðbótin í rakspíra safnið hjá mínum manni er ilmurinn The Game frá Davidoff. Flaskan er hönnuð svona líka skemmtilega í takt við nafnið en hún lítur út eins og spilapeningar í bunka –  mjög flott…

FÖRÐUN: Uppáhalds make-up artistarnir mínir á netinu

Screen Shot 2013-05-23 at 08.00.39

Í deginum eru 24 klukkutímar. Stundum væri þægilegt ef þeir væru aðeins fleiri. Ég veit hvað ég myndi gera við þessa aukalegu klukkutíma. Einhver myndi kannski taka til í fataskápnum, hreinsa til í garðinum, bjarga fólki úr sjálfheldu uppi á fjallstindum. Ég myndi skoða make-up blogg. „Göfugri“ iðja yrði það ekki. Það skemmtilegast sem ég…