Færslur í flokknum: Innlent

FRÉTT: Alma Rut biðlar til almennings - Fólk sefur úti á götu!

Alma Rut Lindudóttir hefur barist fyrir málefnum utangarðsfólks og kynnt sér vel þau úrræði sem eru í boði. Málefnið á hug hennar og hjarta enda var Loftur Gunnarsson, útigangsmaður og mikill öðlingsdrengur, vinur hennar.

bekkurLoftur lést fyrir aldur fram en Alma segir að hefði hann fengið betri þjónustu og meiri aðhlynningu hefði hann ekki þurft að deyja. Alma tekur þó fram að með því sé hún ekki að gera lítið úr því sem hefur verið gert. "Í mínum augum á þetta fólk að fá sömu aðhlynningu og þjónustu og aðrir einstaklingar. Ég hef verið í samskiptum við einstaklinga sem hafa misst ættingja sína bæði fólk sem hefur orðið úti eða fólk sem hefur verið mjög veikt af völdum alkahólisma," segir Alma sem  stendur nú fyrir vitundarvakningu um málaflokk utangarðsfólks og biðlar til borgaryfirvalda um bætta aðstöðu og betri úrræði. alma"Úrræðin sem eru í boði eru misgóð og það sem ég hef talið nauðsynlegast að bæta og breyta er gistiskýlið, að sjálfsögðu geri ég mér grein fyrir að gistiskýlið er neyðarúrræði og er ekki ætlað sem heimili en tel ég samt nauðsynlegt að neyðarúrræði séu mannsæmandi, snyrtileg og bjóði upp á þá þjónustu sem þarf." Í fyrra var mönnum vísað 24 sinnum frá Gistiskýlinu í Þingholtsstræti þegar húsið var orðið fullt en bara í síðastliðnum aprílmánuði voru frávísanir 63 talsins og tæplega þrjátíu í janúarmánuði. Í áskorun Ölmu á Change.org  kemur fram að á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs hafa komið upp 137 tilvik þar sem körlum hefur verið vísað frá neyðarskýli borgarinnar.

Það er 137 tilvikum of mikið!

 

FRÉTT: Alma Rut biðlar til almennings – Fólk sefur úti á götu!

bekkur

Alma Rut Lindudóttir hefur barist fyrir málefnum utangarðsfólks og kynnt sér vel þau úrræði sem eru í boði. Málefnið á hug hennar og hjarta enda var Loftur Gunnarsson, útigangsmaður og mikill öðlingsdrengur, vinur hennar. Loftur lést fyrir aldur fram en Alma segir að hefði hann fengið betri þjónustu og meiri aðhlynningu hefði hann ekki þurft…

VEITINGASTAÐIR: Dýrðlegur matur og vínflaskan á 3600 kr á MAR*****

Screen Shot 2013-05-13 at 15.08.48

Nýlega opnaði veitingastaður við höfnina í Reykjavík sem býður upp á góðgæti úr eðal íslensku hráefni framreitt á suður – ameríska og evrópska vísu. Staðurinn er einstaklega vel staðsettur við höfnina þar sem mjög skemmtileg menning hefur verið í vexti síðustu misseri. Á sama stað er einnig að finna hönnunarverslunina Mýrina sem selur fallegan varning…

FRÉTT: Kraftakonur keppa í kraftlyftingum hjá Gróttu

Mynd fengin af kraftaheimar.net

Á morgun  stendur Kraftlyftingadeild Gróttu sem stofnuð var í árslok 2011 fyrir sínu fyrsta stóra opna móti sem er Íslandsmeistaramót í klassískum kraftlyftingum. Mótið verður haldið í íþróttahúsi Seltjarnarness og er þetta jafnframt í fyrsta sinn sem keppt verður í klassískum kraftlyftingum hér á landi en þær eru með aðeins öðru sniði en hefðbundnar kraftlyftingar. Í…

EGF Húðnæring fyrir líkamann hlýtur Dönsku snyrtivöruverðlaunin 2013

Ragnheiður Guðmundsdóttir, dreifiaðili Sif Cosmetics í Danmörku tók við verðlaununum í Cirkusbyggingunni í Kaupmannahöfn

Íslensku EGF húðvörurnar frá Sif Cosmetics halda áfram að slá í gegn á erlendum mörkuðum en í liðinni viku hlaut EGF Húðnæringin fyrir líkamann hin eftirsóttu Danish Beauty Awards í flokki lúxushúðvara fyrir líkamann. Í kjölfarið hefur hún fengið frábæra umfjöllun í dönsku dagblöðunum Börsen og Berlingske Tidende. Danish Beauty Awards eru alþjóðleg verðlaun sem veitt…

TÍSKA: Krassandi ný netverslun í loftið – Föt heim að dyrum

Screen Shot 2013-05-06 at 15.28.14

Fljótlega fer í loftið spennandi tískuvöruverslun sem ber heitið Moodbox. Ég fékk að forvitnast aðeins um netverslunina hjá Fanneyju Önnu Ómarsdóttur innkaupastjóra. Merkið moodbox.is er búið til af Ingibjörgu Þorvaldsdóttur, Fanneyju Önnu Ómarsdóttur og Kára Óskari Sverrissyni. Ingibjörg Þorvaldsdóttir …eigandi, er með áralanga reynslu þegar kemur að verslunarrekstri og framleiðslu. Mikill áhugi liggur á sviði…

MENNING: Hjólaratleikur og listaflækjur fyrir yngri-borgarana

hjolafaerni

Í dag hefst barnamenningarhátíð með pompi og prakt. Hún mun standa frá 23. – 28. apríl og mikið verður um að vera fyrir yngri-borgara þessa daga. Meðal annars má nefna fjölbreytta dagskrá á vegum Listasafns Reykjavíkur vítt og breitt um borgina og á sjálfu safninu en við fullorðna fólkið fáum frítt inn í fylgd með börnum á bæði…

Bjarni Dagur ætlar að fá sér gíraffa til að mótmæla skrítnum lögum

giraffi

Bjarni Dagur Jónsson fyrrum Bylgjumaður ætlar að mótmæla banni við hundahaldi á Gróttu með frumlegum hætti. Í dag setti Bjarni húmoríska mynd af gíraffa á Gróttu inn á Facebook hóp fyrir íbúa Seltjarnarness en með henni vill hann mótmæla þessu banni og að hundaeigendur borgi sérstakan skatt af gæludýrum sínum en kattareigendur ekki. „Umhverfisnefnd Seltjarnarness…

Englar alheimsins: Miðarnir rjúka út – aukasýningar komnar í sölu!

Screen Shot 2013-04-20 at 18.27.16

Í kvöld mun Þjóðleikhúsið frumsýna á Stóra sviðinu Engla alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson í nýrri leikgerð Þorleifar Arnar Arnarssonar og Símons Birgissonar. Englar alheimsins er ein ástælasta skáldsaga síðari ára og hafa bæði kvikmyndin og skáldsagan notið fádæma vinsælda.  Ljóst er að margir bíða leikgerðarinnar með eftirvæntingu en um leið og forsala hófst varð…

Verðlaunasýningin Walking Mad: Mikil orka á sviðinu, auðvelt að hrífast með

Walking-Mad-I

Síðustu helgi var frumsýning á Walking Mad í Borgarleikhúsinu en það er ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN sem flytur verkið á þessu fertugasta starfsári flokksins! Það er Johan Inger, fyrrverandi leikrænn stjórnandi Cullberg Balletflokksins og meðlimur í Konunglega balletflokknum í Svíþjóð og Netherlands Dance Theatre, sem hefur skapað glæsilegt verk fyrir níu dansara. Dansverkið er sett fram við…

VIÐTAL: Næsta ‘singles’ partý nálgast – Mikil gleði eftir það síðasta!

Dagbjört heldur annað singles party laugardaginn 20. apríl

Fyrir mánuði stóð Dagbjört Þórðardóttir fyrir viðburði eingöngu ætlaðan einhleypu fólki á aldrinum 25-45 ára. Viðbrögðin létu ekki á sér standa, allmargir fóru á stefnumót og einhverjir eru enn að hittast. Hvað varð til þess að þú ákvaðst að halda annan svona viðburð með svo stuttu millibili? Ánægjan sem skein úr augum gestanna þegar það gekk…