Færslur í flokknum: Snyrtibuddan

SNYRTIVÖRUR: Grænt og geggjað naglalakk frá YSL

YSL Makeup Collection for Spring 2013 www.makeuptemple.blogspot.com-001

Ég er nagalalakkafrík og er löngu búin að missa töluna á því hversu mörg naglalökk ég á, þau eru meira að segja í sérstakri "fansý" skál inn á baðherbergi hjá mér!

0.365x365 Yves Saint Laurent hefur ekki svikið mig þegar naglalökk eru annarsvegar og í vorlínu þeirra fyrir árið 2013 er grænn litur sem ég er mjög skotin í, hann heitir Jade Imperal og er númer 34. images Ég ákvað um daginn að halda matarboð og korter í boðið var ég ekki ennþá búin að naglalakka mig og var ekki alveg viss  hvort ég ætti að setja eitthvað á neglurnar en ég var búin að stara á þennan lit í skálinni allan daginn og lét vaða, æji þá verður þetta bara eitthvað klúður hélt ég!

YSL Jade Imperial

Neglurnar voru lakkaðar og ég var sko ekki svikin, ein umferð og málið er dautt! Lakkið þornar á núll einni og glansar eins og enginn sé morgundagurinn. Pensillinn er flatur á burstanum og það finnst mér mjög mikill kostur því þannig er ég miklu fljótari að lakka mig. Lakkið endist og endist og veitir einnig góða vörn og gefur nöglunum raka.  

ysl jade imperial 1

Stelpur ég er að segja það, þetta er sumarliturinn, grænn, vænn og hrikalega smart litur sem passar við allt!

SNYRTIVÖRUR: Grænt og geggjað naglalakk frá YSL

Screen Shot 2013-04-26 at 07.53.57

Ég er nagalalakkafrík og er löngu búin að missa töluna á því hversu mörg naglalökk ég á, þau eru meira að segja í sérstakri „fansý“ skál inn á baðherbergi hjá mér! Yves Saint Laurent hefur ekki svikið mig þegar naglalökk eru annarsvegar og í vorlínu þeirra fyrir árið 2013 er grænn litur sem ég er…

VIÐTAL: Dýrleif Sveinsdóttir gefur 8 góð ráð fyrir förðun

Screen Shot 2013-05-21 at 05.48.46

Dýrleif Sveinsdóttir er 23 ára starfsstúlka hjá MAC, lærði í Snyrtiakademíunni og hefur farðað í síðustu tveimur tískuvikum í Kaupmannahöfn þar sem hún farðaði m.a. fyrir Vivienne Westwood. Dýrleif var svo góð að svara nokkrum förðunar tengdum spurningum fyrir Pjattrófur:  1. Hvað eigum við allar að hafa í snyrtibuddunni? Hyljara, maskara og sólarpúður/kinnalit. 2. Hvað…

SNYRTIVÖRUR: Instant Glow Face Lotion frá ST TROPEZ

Screen Shot 2013-05-08 at 14.48.34

Sumar ó sumar komdu fljótt! Gerðu mig útitekna og fína! Þegar hitastigið er ekki mjög hátt og sólin ekki mikið að sýna sig (þó það sé komið sumar) þá er maður ekki mikið að liggja í pottinum eða á pallinum að sóla sig og reyna að fá smá frísklegan lit á húðina í góðu samstarfi…

SNYRTIVÖRUR: PureDKNY – Rósarilmur sem hjálpar fátækum konum

PureDKNYADropofRosePerfume

PureDKNY A Drop Of Rose frá Donna Karan er léttur og kvenlegur ilmur út í gegn. Uppistaða ilmsins er tyrknesk rós handtýnd í Isparta dalnum í Tyrklandi. Framleiðsluferlið er af gamla skólanum sem er nánast óháð allri nútímatækni. Úr framleiðsluferlinu kemur hrá rósarolía sem er sett í ilmvatnið. Ilmurinn er sem sagt holdgun rósar í…

SNYRTIVÖRUR: Uuppáhalds sólarpúður Kim Kardashian!

Screen Shot 2013-05-16 at 22.57.57

Hingað til hef ég alltaf notað sólarpúður með shimmeri  en ég prófaði nýlega sólarpúður frá Smashbox sem er matt… … og núna verð ég að viðurkenna að mér finnst það mun flottara en sólarpúður með shimmeri! Púðrið heitir BRONZE LIGHTS, kemur frá nýja uppáhaldinu mínu SMASBOX og liturinn heitir Suntan matte. Það er frekar dökkt…

SNYRTIVÖRUR: Vínrauðar neglur eru nýjasta æðið

Varir og neglur í stíl!

Ég hef alltaf verið hrifin af dökku naglalakki en nýjasta æðið mitt er dökkvínrautt naglalakk! Þessi litur finnst mér passa við allt og alla. Hann virkar klárlega sem spari en svo er hann líka mjög svalur að mínu mati. Nýjasta naglalakkið mitt heitir Brick Wall (#90) og kemur frá Sally Hansen, hann er dökkrauður og…

SNYRTIVÖRUR: See By Chloé – Sumarilmurinn minn í ár

seebychloe-fragancia

Sumar eitt vann ég í snyrtivörudeild. Á milli þess sem ég afgreiddi viðskiptavini og reyndi mitt besta að spreyja ekki beint í augun á þeim (slysin gerast) þá dundaði ég mér við að lykta af hinum og þessum ilmvötnum sem verslunin hafði upp á að bjóða. Lyktarskynið er eitt áhugaverðasta verkfæri sem líkaminn okkar býr…

SNYRTIVÖRUR: Fjólublár gel eye-liner frá SMASHBOX

smash

Ég er búin að vera alveg Smashbox óð uppá síðkastið, alltaf gaman að uppgvöta nýtt merki sem maður virkilega fílar. Ég fékk mér nýlega gel eyeliner frá þeim sem er alveg æðislegur! Það er smá kúnst að læra að nota gel eyeliner en æfingin skapar meistarann og ég er orðin nokkuð góð í því. Eyelinerinn…

SNYRTIVÖRUR: Even Better Compact Makeup – Nýtt frá Clinique

Clinique - Even Better Compact Makeup

Ég hef aldrei orðið fyrir vonbrigðum með farða frá Clinique enda er fyrirtækið sterkast í því að búa til farða (þ.e. púður og meik) sem jafnar út lit húðarinnar og sléttir yfirborð hennar. Even Better Compact Makeup er nýr farði frá Clinique Þetta er léttur kremfarði, inniheldur sólarvörn SPF 15, kemur í fallegu  box með góðum…

ANDLITIÐ: EGF – Dagkrem sem bjargar þurri húð

944-0920

Á Íslandi er allra veðra von eins og við höfum fengið að upplifa þennan veturinn, kalt, heitt, sól, snjór, slydda, rigning og allur pakkinn. Þegar veðrið breytist svona hratt þá veit húðin ekki hvernig hún á að bregðast við, í mínu tilviki brást húðin mjög illa við, ég var farin að fá þurrkubletti og mér…