Færslur í flokknum: Mannasiðir

SAMBÖND: Er ég mögulega einn versti "hössler" í heimi?

henry rollinsÉg var að horfa á Henry Rollins um daginn með einn af „spoken word“ flutningunum sínum. Eitt af því sem hann var að tala um var hvað honum gengi illa að tala við konur og hann segði alltaf akkúrat vitlausa hluti (þau ykkar sem ekki hafa kynnt sér Henry Rollins, ég hvet ykkur til að gera það!).

Ég að vísu trúi manninum mjög takmarkað þar sem mér finnst hann alveg svakalega heillandi en það er allt önnur saga…á meðan ég hlustaði á hann segja þetta áttaði ég mig á því að ég á við svipað vandamál að stríða (við eigum svo gasalega margt sameiginlegt við Henry!) en bara gagnvart strákum. Þó mér sé svakalega illa við að alhæfa þá á ég mjög auðvelt með því að halda því fram að ég sé líklega einn versti "hössler" í heimi. Ég áttaði mig fyrst á því að ég ætti ekki neitt svakalega auðvelt með samskipti við stráka fyrir næstum því 10 árum síðan þegar strákur sem ég hafði verið lengi skotinn í (og var nýhættur með kærustunni sinni) kom að tala við mig á einhverju djamminu. Til að gera langa sögu stutta þá var ég svo stressuð að það yrði einhver vandræðaleg þögn að ég fór að tala við hann um fyrrverandi kærustuna hans að fyrra bragði og það endaði með því að hann fór að finna hana og þau fóru saman heim! Auðvitað voða gaman fyrir þau en svolítið minna gaman fyrir mig! pjatt.is Ferill minn í viðreynslu, og almennum samskiptum við hitt kynið hefur ekki verið neitt glæsilegri eftir þetta. Vinkonur mínar eru farnar að hafa svo miklar áhyggjur af þessari "fötlun" minni að þegar ég sá strák sem ég hef lengi verið skotin í en þekki ekki neitt á Ellefunni fyrir einhverjum mánuðum síðan endaði það með því að vinkona mín fór að strjúka á honum upphandlegginn á bak við bakið á mér í einhverri von um að hann myndi halda að það væri ég sem væri að strjúka honum. Við skulum alveg láta það liggja á milli hluta af hverju hún hélt að þessar strokur myndu kveikja áhuga hans á mér en ekki gat hún farið og talað við hann og þóst vera ég...til að gera langa sögu stutta þá virkaði þessi viðreynsla allavega ekki hjá okkur. Annað sem ég geri sem hvetur stráka einhverra hluta vegna ekki til að hrífast af mér er að neita þeim um að bjóða af því ég get sko alveg keypt fyrir mig sjálf! Að gera grín að þeim… eitthvað sem ég geri mikið þegar ég er stressuð, að tala um stjórnmál eða heimsmálin… einhvernvegin lendi ég líka alltaf í því að tala um eitthvað sem er alveg svakalega lítið kynæsandi eins og staðgöngumæðrun eða umskurður. Svo á ég það líka til að detta í þann pakka að hjálpa þeim að hössla aðrar stelpur…sem ég er greinilega góð í því það endar í öllum tilvikum á því að ég fer ein heim.

Á þessu ljósaperumómenti mínu ákvað ég að staðan væri samt ekkert svo slæm ef maður myndi enda eins og Henry Rollins, einhleyp og hafa tíma til að ferðast um allan heim án þess að þurfa að ræða það við nokkurn mann. Það að vera einhleyp getur nefnilega verið svolítið mikið frábært þegar maður hugsar út í það!

SAMBÖND: Er ég mögulega einn versti „hössler“ í heimi?

pjatt.is

Ég var að horfa á Henry Rollins um daginn með einn af „spoken word“ flutningunum sínum. Eitt af því sem hann var að tala um var hvað honum gengi illa að tala við konur og hann segði alltaf akkúrat vitlausa hluti (þau ykkar sem ekki hafa kynnt sér Henry Rollins, ég hvet ykkur til að…

Varúð! Topp 10 hættulegustu snyrtivörurnar til að taka með á djammið

Of mikið?

Á leiðinni út, hvort sem er það er í veislu eða bara út á lífið með góðum vinum, ætlum við dömurnar oft að vera útsjónasamar og pökkum því í flýti niður nokkrum vel völdum snyrtivörum. Fullvissar höldum við út í þeirri trú um að þessi tæki og tól munu hjálpa okkur við að halda húðinni…

SAMSKIPTI: 16 leiðir til að takast á við neikvætt fólk

SAMSKIPTI: Að takast á við neikvætt fólk

Á lífsleiðinni verður á vegi okkar allskonar fólk. Fólk sem við veljum ekki endilega að umgangast en þurfum að eiga í samskiptum við út af skóla og vinnu til dæmis. Við þekkjum allar þessa neikvæðu týpu sem er sífellt kvartandi og kveinandi, vorkennandi sér, með leiðinlegar athugasemdir, baktal og kann ekki að samgleðjast öðrum. Á…

Vertu hamingjusamari: Önnur 5 atriði sem þú skalt hætta strax!

Screen Shot 2013-03-19 at 20.00.05

Í gær birtum við fyrri fimm atriðin sem þú þarft að hætta strax ef þú vilt verða hamingjusamari í þessu lífi sem okkur er gefið. Hér eru svo önnur fimm. Um að gera að ígrunda þetta vel og vandlega – og hætta svo bara strax þessari vitleysu! Hættu… 6. Stjórnsemi Já, þú ræður, það vitum…

Vertu hamingjusamari: 5 atriði sem þú skalt hætta strax

Happy_Sad_by_ZoeWieZo

Stundum snýst hamingjuaukning í lífinu ekki endilega um að bæta einhverju í tilveruna. Oft er gott að hætta hlutum líka. Hér eru nokkur atriði sem þú skalt hætta strax í dag… 1. Að kenna öðrum um Það er alltaf svo auðvelt að kenna öðrum um þegar ekki gengur vel. Fólk gerir mistök, kemur of seint,…

TILVERAN: 7 ömurlegar afsaknir fyrir því að vera of sein í vinnuna

Tick-Tock-Woman

Rannsóknir sýna fram á að um 26% allra launþega í 100% starfi mæta of seint til vinnu að minnsta kosti einu sinni í mánuði og um 16% koma of seint að lágmarki einu sinni í viku. Þetta kemur kannski ekki á óvart enda margir sem eiga í miklu stríði við klukkuna, það sem er hinsvegar…

SAMSKIPTI: Full á Facebook – Á ég að eyða honum af vinalistanum?

url

Ég hef í nokkurn tíma haft það fyrir sið að eyða úrkulnuðum sénsum af vinalistanum mínum á facebook. Ég byrjaði á þessu eftir að ég fór í fyrsta og eina skiptið full á Facebook og skrifaði langt og tilfinningaríkt bréf til stráks sem ég var mjög skotin í en þurfti samt sem áður að hætta…

HEILSA: Hættu þessu baknagi – hugsaðu um sjálfa þig!

Screen Shot 2013-01-06 at 02.28.26

Nýtt ár er gengið í garð og líkamsræktarstöðvarnar fyllast af fólki, áramótheitin flæða og eins og við flestar vitum þá springa margar á loforðum og fyrirheitum þegar janúarmánuður er varla hálfnaður. Það fauk pínulítið í mig þegar ég las það sem fjórtán ára stúlka skrifaði á Facebook síðuna sína um hvernig samfélagið hagar sér gagnvart…

FACEBOOK – Sýndarveruleiki eða raunveruleiki? Danadrottning ögrar

Screen Shot 2013-01-02 at 21.08.26

Margrét Danadrottning hafði stórar áhyggjur af Facebook-notkun samlanda sinna í  áramótaávarpi sínu og hvatti fólk til að forðast sýndarmennsku og trúa ekki þeim óraunveruleika sem sýndur er í samfélagsmiðlum. Ummælin hafa vakið hörð viðbrögð í Danmörku en Margrét hefur áhyggjur af þeim sýndarveruleika og yfirborðsmennsku sem henni finnst fólk lifa í gegnum Facebook og aðra…

SAMSKIPTI: Vinabeiðni á Fésbókinni – Kynntu þig!

Fésbókinni og Vinir

Það kemur fyrir að fólk sendi mér vinabreiðni á fésbókinni, stundum mér til mikilli furðu. Oft þarf ég lengi að velta vöngum yfir því hver viðkomandi er og af og til verð ég furðulostin yfir beiðinni. Mér þykir yfirleitt mjög gaman þegar gamlir félagar senda mér vinabreiðni. Það rifjar upp góðar minningar frá fólki sem…