Færslur í flokknum: Samskipti

Feimnismálið: Er allt 'eðlilegt' þarna niðri? - Lykt, áferð og fleira

Work-pics677Eitt af því sem flestar konur og stelpur upplifa að minnsta kosti einu sinni á ævinni er að velta því fyrir sér hvort það sé "allt eðlilegt" þarna niðri".

Líffæri konunnar eru nefinlega svo ótrúlega flókin að það þarf alveg heila deild í læknisfræði til að skilja þau. Allskonar hlutir geta haft áhrif á það hvort við erum "eðlilegar" þarna eða ekki en flestar konur upplifa það reglulega, eða af og til, að vera með útferð og kannski kláða eða vonda lykt. Mjög margar stelpur fá candida sveppasýkingu reglulega og þurfa endalaust að standa í því að ráða bót á því meini. Það er gert meðal annars með því að forðast að borða sykur og hveiti, nota Pevaryl og Canesten eða taka töflur, drekka vel af AB mjólk og passa hvernig nærfötum þú gengur í eða hvernig dömubindi þú notar. Já, þetta getur verið flókið. Svo erum við þannig úr garði gerðar fæstar þola sápuþvott að neðan, það kallar bara á eymsli og viðkvæmni. Þó langar okkur oft að þrífa þetta flókna svæði vel, sérstaklega þegar við erum á blæðingum. Sem gerist einu sinni í mánuði.

Aðgengileg lausn

Það eru ekki margar neysluvörur á markaðnum sem eru sérstaklega ætlaðar konum með þennan vanda, sem er harla furðulegt því um 9 af 10 kannast við þetta. Bella hefur þó undanfarið verið að prófa nokkuð góðar vörur sem heita Vivag. Vinkona gaf Bellu nefninlega blautþurrkur, sápu og töflur í prufustærð og sagði spennt frá því að hún gæti ekki lifað án þeirra. Ég bara yrði að prófa! vivag_alle_produkter Ég þáði þetta svona hálf vandræðalega og byrjaði á að nota hylkin en það eru svona litlar töflur sem eyða skrítinni lykt og koma jafnvægi á bakteríuflóruna. Hylkin eru eins einföld og hugsast getur en þú bara stingur þeim upp áður en farið er í háttinn. Eftir tvo daga var komið fullkomið jafnvægi á alla flóruna og ég ilmaði eins og blóm í sumargolunni. Alveg frábært, sérstaklega af því það getur verið svo dýrt og mikið vesen að útvega sér lyf eða fara í sykurlaust AB átak til að jafna þessa blessuðu flóru.

Borgar sig að hafa svæðið hreint

Sápan kemur sér sér síðan mjög vel í sturtunni, og klútarnir fyrir og eftir kynlífið líka en eins og margir vita er mjög gott að fara á klóið að pissa og þrífa sig eftir á til að koma í veg fyrir t.d. þvagfærasýkingar og annað leiðinda vesen. Þá er frábært að hafa þessa litlu klúta við höndina en verðbilið á þessum vörum (s.s. klútum, sápu og töflum) er frá 900 til 2000 kr sirka og þær fást í flestum apótekum.

Það væri gaman að heyra hvort þú kannt einhver náttúruleg ráð við þessu eða fleiri. Endilega sendu póst á pjattrofurnar (hjá) pjattrofunar.is eða í kommenti á FB síðu Pjattrófanna.

 

Feimnismálið: Er allt ‘eðlilegt’ þarna niðri? – Lykt, áferð og fleira

Work-pics677

Eitt af því sem flestar konur og stelpur upplifa að minnsta kosti einu sinni á ævinni er að velta því fyrir sér hvort það sé „allt eðlilegt“ þarna niðri“. Líffæri konunnar eru nefinlega svo ótrúlega flókin að það þarf alveg heila deild í læknisfræði til að skilja þau. Allskonar hlutir geta haft áhrif á það…

Óharðnaðar sálir og áherslan á útlitið – Hvað samþykkjum við heima?

Screen Shot 2013-06-18 at 11.45.24

Nú þegar umræða um væntanlega fegurðarsamkeppni er á margra vörum langar mig eitt andartak til að tengja umræðuna um útlitsdýrkun að því hvaða slíkar áherslur geta haft á ungar og óharðnaðar sálir barna og unglinga. Þetta er ekki neitt nýtt en er eitthvað vit í dag, árið 2013, að ýta undir svo óskynsamlega og persónuleikabrenglandi…

LESENDABRÉF: Hann hélt fram hjá mér í rúmi foreldra minna

Screen Shot 2013-06-16 at 12.01.04

„Rakel“ skrifaði okkur bréf eftir að hafa lesið grein um siðblindu sem við birtum fyrr í vikunni. Kæru Pjattrófur Fyrir fjórum árum tók líf mitt algjörum stakkaskiptum. Þar sem ég dansaði áhyggjulaus með vinkonum mínum á skemmtistað niðrí bæ hefði mig ekki getað grunað hve líf mitt ætti eftir að breytast mikið á nokkrum mánuðum. Það…

Sumarið – Skemmtilegar hugmyndir fyrir barnafjölskyldur

images

Í sumar ætla ég að njóta þess í botn að vera til ásamt fjölskyldunni minni og vinum. Ég hef mikið verið að velta því fyrir mér hvað við getum gert skemmtilegt í sumar ásamt börnunum okkar án  þess að þurfa að fara langt að heiman.  Datt mér þá í hug að tína til nokkrar skemmtilega…

Líkami konunnar eftir meðgöngu – 12 dásamlegar myndir af mömmum

970404_471109936299167_817570745_n

Hvers vegna er það sem svo margar mæður, og þar á meðal ég, eigum svona rosalega erfitt með að sætta okkur við þær breytingar sem verða á líkama okkar eftir að við eignumst börn? Sumar konur ganga út af fæðingardeildinni í þröngum gallabuxum og það er ekki að sjá að þær hafi átt börn meðan…

LJÓSMYNDIR: Taktu flotta mynd af fjölskyldunni þinni – 22 hugmyndir

Flottur bakgrunnur

Nú þegar sumarið er komið er frábært að nýta það til þess að taka ljósmyndir af allri fjölskyldunni saman. Tilvalið er að skella sér út í guðsgræna náttúruna og láta atvinnumann smella nokkrum vel völdum af sér og sínum og þá er gott að vera búin að undirbúa sig örlítið áður og vita nákvæmlega hvað…

SAMSKIPTI: 12 einkenni siðblindra einstaklinga – Þekkir þú einn?

Screen Shot 2013-06-06 at 15.10.20

Ég hef verið að velta fyrir mér siðblindu upp á síðkastið, er nefnilega nokkuð viss um að á síðasta ári hafi orðið á vegi mínum siðblindur einstaklingur. Eftir að hafa lesið mér aðeins til um siðblindu og borið saman við mína reynslu hef ég komist að eftirfarandi… Siðblindur einstaklingur: …er ótrúlega sjarmerandi og getur talað…

SAMSKIPTI: Svona tekstu á við 7 gerðir erfiðra vinnufélaga

Blog-HR-Execs-Information-Technology

Það eru til nokkrar gerðir af fólki sem gerir okkur lífið leitt í vinnunni. Hér er listi yfir persónuleikaeinkenni sumra tegundanna og ráð til þess að fást við þær! 1. EINRÆÐISHERRANN Heldur sig á toppnum og gnæfir ógnvekjandi yfir starfsfólkið. Fljótur að reiðast og er óútreiknanlegur. Lausnin: Ekki reyna að öskra hærra en hann. Neyddu…

SAMBÖND: Hugleiðingar um ástina

Spakmæli: Ástin

Ástina þekkjum við flestar. Hún getur verið erfið viðureignar en samt virðumst við alltaf leita í hana. Ástin getur verið ósanngjörn, illkvittin, flókin og ruglingsleg enda listamenn margsinnis búnir að glíma við að skilgreina hana og útskýra. Það er þrennt sem mér finnst mikilvægt þegar kemur að ástinni og um daginn rakst ég á tilvitnanir á…

SAMSKIPTI: 10 leiðir til að forðast vandræðalegheit í veislum

Screen Shot 2013-05-23 at 07.21.50

Það er ekki endilega öllum gefið að kunna sig á mannamótum. Fyrir mörgum, og þá kannski sérstaklega okkur íslendingum, getur það flækst fyrir að kunna alla mikilvægu ‘mannasiðina’ sem gera mann að góðum gesti og skemmtilegum borðfélaga. Hér eru tíu heilræði sem ættu að einfalda þér svolítið lífið næst þegar þú ferð í formlegt boð…