Færslur í flokknum: Pistlar

Rannveig Jónína pjattrófa tók þátt fegurðarsamkeppni

ranns2Árið 2003, eða fyrir 10 árum síðan, tók ég þátt í fegurðarsamkeppni. Að hafa tekið þátt í þeirri "keppni" er eitthvað sem ég mun alltaf sjá eftir.

Það sem er fyndnast við þetta allt saman er að ég var sko staðráðin í því að taka þátt í keppninni. Ekki veit ég af hverju ég var svona ákveðin en ég vil kenna óþroska um og því að ég var á skrítnum stað í lífinu, ekki hamingjusöm og í raun alltaf að leita að viðurkenningu.
Í henni kom í ljós að ég var með "of stór læri" eftir margra ára fótboltaiðkun og það þyrfti að laga, ekki var sportlegur líkami minn nógu góður í slíka kroppasýningu og á næstu æfingu fengum við allar matardagbók og matseðil.
Ég var beðin að taka þátt árinu áður en þá fannst mér ég ekki nógu þroskuð (enda bara sautján ára), en viti menn þvílíkur þroski á þessu eina ári (eða þannig) og ég dreif mig í "prufu". Í henni kom í ljós að ég var með "of stór læri" eftir margra ára fótboltaiðkun og það þyrfti að laga, ekki var sportlegur líkami minn nógu góður í slíka kroppasýningu og á næstu æfingu fengum við allar matardagbók og matseðil. Til að gera langa sögu stutta þá innihélt sá matseðill skyr, prótein og kjúkling. Þurrt og leiðinlegt fæði en ég hafði ekkert vit á hvað ég ætti að borða og kunni ekki að elda. Sem betur fer bjó ég ennþá hjá mömmu og pabba og mamma sá til þess að ég nærðist almennilega, annars veit ég ekki hvar þetta hefði endað þar sem að ég á það til að fara alla leið þegar ég tek mér eitthvað fyrir hendur. Er bara sú týpa.

Kjánalegar gönguæfingar

Gönguæfingarnar svokölluðu voru skrautlegar en þar vorum við látnar spranga um á bikiní og himinháum hælum fyrir framan spegla. Ég man vel eftir einni gönguæfingunni en sama dag hafði ég innbyrgt óvenju mikið af vatni og var því útbelgd. Þennan ágæta dag var potað í mig og sagt að þetta gengi ekki lengur ég yrði að fara að taka mig á!! Eftir þessa æfingu brotnaði ég gersamlega niður en ég hafði mætt "samviskusamlega" á líkamsræktaræfingar 2x á dag og farið algjörlega eftir því sem mér hafði verið sagt að gera í mataræðinu.

Furðulegt kvöld

Kvöldið sjálft var frekar furðulegt og eftir keppnina sagði ein frænka mín við mig að hún hefði ekki þekkt mig á sviðinu, ég var ofurljóshærð, súkkulaðibrún með hvíttaðar tennur og hafði horast töluvert, það er víst standardinn í slíkum keppnum. Eftir á að hyggja fannst mér ég bara hafa verið uppfyllingarefni sem þjónaði engum tilgangi, mikill peningur fór í keppnina, akstur í annað bæjarfélag, kjóll, skór, skart og margt margt fleira sem kostaði skildinginn og maður fékk ekkert í staðinn nema (að mér fannst) nema niðurlægingu fyrir að hafa tekið þátt í þessu rugli. Já, mér fannst ég vera niðurlægð. Ég er mikil keppnismanneskja að eðlisfari og mér fannst ég hafa brugðist sjálfri mér og öllum öðrum í kringum mig. Þegar ég kom heim þá grét ég og grét vegna þess að mér fannst þetta svo hrikalega skítt og eftirsjáin yfir þessu öllu saman var heilmikil.

Slæm reynsla

Við stelpurnar sem tókum þátt í keppninni erum ekki í miklu sambandi í dag eða engu. Ég eignaðist engar nýjar vinkonur í þessum hóp og öðlaðist ekki mikla reynslu úr þessu nema það að mér leið eins og einhverri ónytjungi úti í horni sem þurfti jú að vera þarna en samt sem áður var löngu búið að ákveða sigurvegara keppninnar og við hinar vissum það alveg. Þannig er þetta víst alltaf. Ef ég gæti gefið stúlkum ráð í dag þá er það að taka ekki þátt í slíkri keppni. Það sem ég hef heyrt af þessum keppnum frá öðrum stelpum er að þeim fannst þetta ekki þess virði og vildu svo sannarlega taka þessa ákvörðun til baka og mörgum finnst þetta vera smánarblettur á sinni lífsleið. Fæstar eru stoltar af þessu. Þetta er mín reynsla og margra annara en svo eru auðvitað einhverjar sem lýsa þessu öðruvísi.

Vona svo sannarlega mín kæra að þessi pistill sé hjálplegur og mundu að gera aldrei ekki hlutina fyrir aðra heldur sjálfa þig!

Rannveig Jónína pjattrófa tók þátt fegurðarsamkeppni

Ég þótti of sportlega vaxin og fótboltalærin ekki til fyrirmyndar...

Árið 2003, eða fyrir 10 árum síðan, tók ég þátt í fegurðarsamkeppni. Að hafa tekið þátt í þeirri „keppni“ er eitthvað sem ég mun alltaf sjá eftir. Það sem er fyndnast við þetta allt saman er að ég var sko staðráðin í því að taka þátt í keppninni. Ekki veit ég af hverju ég var…

LESENDABRÉF: Hann hélt fram hjá mér í rúmi foreldra minna

Screen Shot 2013-06-16 at 12.01.04

„Rakel“ skrifaði okkur bréf eftir að hafa lesið grein um siðblindu sem við birtum fyrr í vikunni. Kæru Pjattrófur Fyrir fjórum árum tók líf mitt algjörum stakkaskiptum. Þar sem ég dansaði áhyggjulaus með vinkonum mínum á skemmtistað niðrí bæ hefði mig ekki getað grunað hve líf mitt ætti eftir að breytast mikið á nokkrum mánuðum. Það…

MENNING: Kaupa kampavín til að hella því niður – Vaskning, Traskning

Gullkálfurinn

Sem pjattrófa og fagurkeri hef ég alltaf haft gaman af fallegum hlutum. Stundum rennur þó á mig örlítil græðgi, það er til svo mikið af fínum flíkum og fallegum hlutum í búðum bæjarins og ég þarf augljóslega að eignast það ALLT, takk fyrir pent! Sem betur fer er þetta ekki viðvarandi ástand hjá mér, og milli þess…

Axlapúðar, buffaló skór og skuldavandi heimilanna

buffalo

Fyrir stuttu stóð ég í Kolaportinu og virti fyrir mér skópar sem gengur undir nafninu Buffalo. … en oft hef ég tekið eftir að hinir smekklegustu menn og konur geta stigið feilspor í tískunni. Kemur fyrir besta fólk. Tísku-spekingar tönglast oft á því að tískan fari í hringi, og það gerir hún. Tískan er búin að…

Guðrún Bjarnadóttir – Hógværa fegurðardrottningin frá Ytri-Njarðvík

Screen Shot 2013-05-16 at 22.52.22

Fegurðarsamkeppnir. Ég verð að segja að þær hafa aldrei verið fyrir mig. Augljóslega myndi ég rúlla þeim öllum upp en  til að ýta ekki gervallri íslensku kvenþjóðinni út í klínískt þunglyndi hef ég haldið mig frá slíkum keppnum. Hins vegar hafa fegurðardrottningarnar sjálfar ávallt vakið áhuga minn. Vissulega eru þær fallegar og í okkar samfélagi þykir það öfundsvert (láttu…

SAMBÖND: Er ég mögulega einn versti „hössler“ í heimi?

pjatt.is

Ég var að horfa á Henry Rollins um daginn með einn af „spoken word“ flutningunum sínum. Eitt af því sem hann var að tala um var hvað honum gengi illa að tala við konur og hann segði alltaf akkúrat vitlausa hluti (þau ykkar sem ekki hafa kynnt sér Henry Rollins, ég hvet ykkur til að…

PISTILL: Allir steyptir í sama mót? Leyfum okkur að vera öðruvísi

Screen Shot 2013-04-19 at 12.45.15

Eyjan okkar fagra og kalda er afskekkt það er óhætt að segja það. Engin landamæri, bara við eyjarskeggjar, punktur og basta. Lítil þorp eru hér og þar um landið og tískan í þorpunum varð mér umhugsunarefni. Ég bý í um 3000 manna bæjarfélagi og þegar ég keyri um bæinn eða fer í búðina (sem gerist…

Blondinbella: Sænsk ljóska, hálfnuð með að sigra heiminn!

Isabella Lövengrip

Blondinbella eða Isabella Lövengrip, er 22 ára gömul, fædd og uppalin í Stokkhólmi. Eftir hinni klassísku sænsku uppskrift er hún bæði ljóshærð og bláeygð, brosmild og kát. Fæstum myndi bregða við þessa lýsingu enda má segja með sanni að þarna sé verið að lýsa, næstum því, öllum skandinavískum stúlkum. Hins vegar er Blondinbella frábrugðin öðrum…

Pokamenning í kjörbúðum landsins – Er hægt að bæta hana?

Shopping-pic

Ég man þá tíð þegar afgreiðslufólk í Hagkaup setti vörur í poka fyrir viðskiptavini. Þetta var áður en svokallaðar lágvöruverslanir komu til sögunnar. Partur af því sem átti að lækka vöruverðið í búðunum var lægra þjónustustig, meðal annars þetta að þú áttir sjálf að raða í pokann þinn eftir kúnstarinnar reglum. Svo einhvernveginn lagðist þetta…

SUNNUDAGSPISTILL: Aularnir í umferðinni – Va fangula bastardo!!

umferd1

Hefur þú tekið eftir öllum aulunum í umferðinni? Ég sé þá út um allt! Fólk sem keyrir langt undir hámarkshraða á vinstri akrein, hreinlega lallar um í sínum eigin heimi og pælir ekkert í hinum í kringum sig. Svo er það liðið sem æðir út af aðreinum án þess að líta til hægri eða vinstri,…