Færslur í flokknum: Veitingastaðir

VEITINGASTAÐIR: Dýrðlegur matur og vínflaskan á 3600 kr á MAR*****

bord

Nýlega opnaði veitingastaður við höfnina í Reykjavík sem býður upp á góðgæti úr eðal íslensku hráefni framreitt á suður - ameríska og evrópska vísu.

Staðurinn er einstaklega vel staðsettur við höfnina þar sem mjög skemmtileg menning hefur verið í vexti síðustu misseri. Á sama stað er einnig að finna hönnunarverslunina Mýrina sem selur fallegan varning frá norrænum fagurkerum og hönnuðum. MAR er skemmtilega hannaður af þeim Hafsteini Júlíusyni ogKaritas Sveinsdóttur, bjartur og opinn með stóra glugga og stór hringborð svo að gestir geti náð vel saman sé mætt í stórum hópum. Leirtau staðarins er jafnframt eitthvað sem vert er að minnast á en það er sérhannað fyrir vetingahúsið af Guðnýju Hafsteinsdóttur og einstaklega fallegt. Matseðillinn er fjölbreyttur og girnilegur en eitt af því besta sem við vitum er að koma í hádeginu að borða annaðhvort humar eða hráskinku piadina með tómötum, mozarella og sætkartöflufrönskum. Mmmmm... alveg hrikalega gott. Piadina er ítalskt flatbrauð sem þekkist víða á ítölskum veitingastöðum og er borið fram með fjölbreyttu góðgæti. piadina Eggaldinbuff með sítrónu basil sósu er líka matur sem gleður bragðlaukana og fiskisúpan á staðnum er draumur. Svo er eftirréttur dagsins á aðeins 750 kr! Alltaf gott að fá sér eitthvað sætt með kaffinu eftir matinn. Eitt af því besta við MAR er þó sú frábæra staðreynd að þar má kaupa sér ódýrt en mjög gott vín með matnum. Flestir veitingastaðir eru ekki með vínflöskur undir 6000 krónum en á MAR getur þú fengið bæði úrvals rauð - og hvítvín á litlar 3600 fyrir flöskuna. Vínin eru fyrsta flokks, Trapiche fá Argentínu bæði rautt og hvítt, Villa Lucia frá Ítalíu, bæði rautt og hvítt og svo Crin Roja rauðvín frá Spáni.
Hádegismatseðillinn er opin frá kl 11:30 - 14:00 en eftir það tekur við Aperitivo stund til klukkan 18:00. Aperitivo má kalla ítalskt Happy Hour en á þessum tíma eru bjór, rauðvín og hvítvín á Aperitivo verði. Þá er vínglasið á 700 kr, bjórinn á 500 kr og kokteilar á 1000 kr.
Gaman er að segja frá því að Sveinn Þorri Þorvaldsson yfirkokkur á MAR var áður á Gallerý Holt en yfirþjónninn, Jón Ingi Hrafnsson var áður á Argentínu og Fiskmarkaðnum. Margir myndu halda að MAR væri því algjör "hefðarkattastaður" en það besta við MAR er að þú færð hefðarkattaþjónustu og dýrindis mat og vín á heimiliskattarverði. Piadian í hádeginu kostar t.d. 1.990 kr sem er sambærilegt verð og gengur á flestum veitingastöðum borgarinnar á hádegismatseðlum. Á Aperitivo stundinni er svo hægt að panta nokkra góða smárétti sem sumar er að finna á hádegisseðlinum:
  • Piadina með parmaskinku, tómötum og mozarella - 1990
  • Piadina með steiktum humarhölum - 2490
  • Kókos og lime krydduð skelfiskssúpa - 2100
  • Linsubaunasúpa - 1350
  • Kjúklingasalat með appelsínum og plómum - 1900
  • Eggaldinbuff með sítrónu og basilsósu - 1900
  • Antipasti platti með chorizo pylsu, hráskinku, ólífum, grilluðu grænmeti og fleira góðgæti - 1700
  • Ostaplatti með úrvali af íslenskum ostum borið fram kexi og drottningarsultu úr villiberjum - 1700
  • Kaka dagsins - 750 og volg súkkulaðikaka á 1500 kr

Við hvetjum lesendur okkar eindregið til að kíkja á MAR, hvort sem er í hádeginu með vinnufélögum, á Aperitivo stundinni síðdegis, nú eða í kvöldverð með makanum, fjölskyldu og/eða vinum.

Smelltu hér til að skoða myndir frá opnun staðarins og HÉR má sjá myndir af því þegar 50 glæsikvendi fjölmenntu á MAR fyrr á þessu ári...

   

VEITINGASTAÐIR: Dýrðlegur matur og vínflaskan á 3600 kr á MAR*****

Screen Shot 2013-05-13 at 15.08.48

Nýlega opnaði veitingastaður við höfnina í Reykjavík sem býður upp á góðgæti úr eðal íslensku hráefni framreitt á suður – ameríska og evrópska vísu. Staðurinn er einstaklega vel staðsettur við höfnina þar sem mjög skemmtileg menning hefur verið í vexti síðustu misseri. Á sama stað er einnig að finna hönnunarverslunina Mýrina sem selur fallegan varning…

FRÉTT: Bubbi og Logi Bergmann borða samlokur á Lemon

Tveir sem hafa látið til sín taka, Bubbi og Hallgrímur

Það hefur verið mikið að gera á Suðurlandsbrautinni síðustu vikurnar en þangað hafa helstu selebbar landsins brunað til að smakka á bestu samlokum borgarinnar. Á Suðurlandsbraut 4 hefur opnað nýr veitingastaður, LEMON, en þar bjóða þeir Jón Gunnar Geirdal & Jón Arnar Guðbrandsson upp á dýrindis grillaðar samlokur og allskonar djúsí safa. Fyrirmyndin að staðnum…

FERÐALÖG: Dömuferð til Selfoss City og á Riverside Spa

Skál stelpur!

Líkt og dyggir lesendur okkar vita höfum við Pjattrófur óskaplega gaman af því að taka okkur „húsmæðraorlof“. Skilja karlana eftir heima og ‘tríta’ okkur eins og sönnum hefðarköttum sæmir. Ekki er langt síðan við skelltum okkur í dömufrí á Selfoss. Það er svo gaman að ferðast innanlands og svo óskaplega margt sem hægt er að…

FRÉTT: Hamborgarafabrikkan opnar á Akureyri – Rikka með í hönnun

simmisimmijoe

Tvíeykið Simmi og Jói Forsvarsmenn KEA hótela og Hamborgarafabrikkuna héldu kynningarfund núna í hádeginu og kynntu verðandi breytingar sem eru farnar í gang í Húsnæði Hótels Kea. Á vormánuðum verður opnaður nýr og glæsilegur veitingastaður og “lounge” bar á Hótel Kea Akureyri. Hönnunarferlið er langt komið og í því er leitast við að halda í…

PARTÝ: 50 flottar konur á veitingastaðnum MAR

Anna Rún, Kolbrún Pálína, Gígja Þórðardóttir, Þórdís Þorleifsdóttir og Tinna Stefánsdóttir.

Það var frábær stemmning sem myndaðist á veitingastaðnum MAR í gærkvöldi þegar fimmtíu flottar konur komu þar saman til að bragða á dýrindis réttum og drekka ljúffeng vín. Gleðin hófst kl 19:00 með kokteil í versluninni Mýrinni sem tengist staðnum á skemmtilegan hátt og í kjölfarið var sest til borðs þar sem hver rétturinn á…

FRÉTT: Bjössi, Dísa, Stefán Hilmars og fleiri við opnun MAR

Opnun Veitingastaðarins MAR - www.pjatt.is

Fólk var í hátíðarskapi þegar veitingahúsið MAR opnaði á dögunum og gestir streymdu í Hafnarbúðir sem hýsa þetta flotta, nýja veitingahús við Gömlu höfnina. Athafnakonan Rannveig Grétarsdóttir er einn af eigendum MAR en hún er framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar, sem líka hefur aðsetur í þessu fallega, sögufræga húsi. Rannveig (sem er á myndinni hér að ofan með…

PARTÝ: Pantaðu Tapas heim í Partýið, það kostar ekki meira

snitta

Tapaspartý í annríkinu Ég hélt smá stelpuheimboð um daginn, ákvað að prófa eitthvað nýtt og pantaði Tapas frá Veisluþjónustu Tapashússins daginn áður. Hver elskar ekki TAPAS? Við vorum sjö saman í boðinu og Tapasréttir fyrir okkur allar kostuðu rúmar 15.000 kr. Mér reiknaðist til að þetta yrði líklegast mikið praktískara og ódýrara en að eyða…

VEITINGASTAÐIR: Jólaveislan okkar á Sjávargrillinu – Létt og ljúffeng!!

Guðný Hrönn, Vala Árna og Eva Gunnbjörns í góðum fílíng á Sjávargrillinu

Sjávargrillið á Skólavörðustíg er og hefur verið einn af eftirlætisstöðum okkar pjattrófa í höfuðborginni frá því hann opnaði fyrir rúmu ári enda fer þar saman góð þjónusta, fallegt umhverfi og einstaklega góður matur. Við ákváðum að „tríta“ okkur með því að prófa jólamatseðilinn þeirra en í fyrra áttum við mjög skemmtilega upplifun þegar við fengum…

JÓLIN: Spænsk jólastemmning á Tapas Barnum – Feliz Navidad! Frábært verð

Grísasíða með puru

Nú eru veitingastaðirnir að fara í gang með spennandi jólamatseðla og við á Pjattinu erum byrjaðar að kanna málin. Sá fyrsti sem við tókum sérstaklega eftir er hjá Tapas Barnum en þar er boðið upp á spænska jólastemmningu á einkar góðu verði. Kvöldverðurinn hefst með Faustino freyðivíni í fordrykk. Því næst er boðið upp á…

GJAFALEIKUR: Tapas og Sangria eins og þið viljið á TapasBarnum!

Sangría með ástríðuávöxtum eða Passion Fruit

Af því það er fimmtudagur á morgun langar okkur Pjattrófum í samvinnu við TapasBarinn að bjóða 6 manna hóp í Tapas & Sangria veislu! Hver getur valið sér fjóra tapasrétti af matseðli og svo megið þið fá eins mikið Sangria og þið viljið!! Namm namm namm… Það er hægt að fá fjórar gerðir af Sangria,…