Færslur í flokknum: Tónlist

TÓNLIST: Blurred lines - Sjóðheitt og hrikalega sexý lag!

premiere-robin-thicke-s-blurred-lines-ft-ti-and-pharrell-williams

Undanfarið hef ég verið að hlusta á lagið "Blurred Lines" með Robin Thicke og Pharrell Williams og ég held svei mér þá að þetta sé eitt kynþokkafyllsta lag sem ég hef heyrt!

Þegar þeir félagar tóku upp fyrsta myndbandið (já fyrsta) við þetta lag þá fór Robin til konunnar sinnar og spurði hana hvort það væri í lagi ef hann tæki myndbandið upp þar sem að það innihélt nánast allsbera kvenmenn dansandi allt í kring. Frúin tók vel í það og myndbandið var tekið upp en það þótti of gróft, var fjarlægt af Youtube og þeir urðu að gjöra svo vel að taka það upp aftur!

blurred-lines-explicit-unrated-video-robin-thicke

Myndbandið er svo sem ágætt en lítið gerist í því nema að fáklæddar dömur dansa í kringum þá félaga og rapparann T.I. Kvenmenn í Bandaríkjunum virðast samt sem áður ekki halda vatni yfir þeim félögum eins og kom bersýnilega í ljós þegar þeir komu fram í The Ellen Show en salurinn hreinlega trylltist þegar þeir gengu upp áhorfendastigana og margar  konur dönsuðu eins og þær ættu lífið að leysa.

Hér að neðan getur þú séð þá félaga koma fram í The Ellen Show, The Graham Norton Show og síðan ritskoðaða myndbandið.

TÓNLIST: Blurred lines – Sjóðheitt og hrikalega sexý lag!

blurred-lines-explicit-unrated-video-robin-thicke

Undanfarið hef ég verið að hlusta á lagið „Blurred Lines“ með Robin Thicke og Pharrell Williams og ég held svei mér þá að þetta sé eitt kynþokkafyllsta lag sem ég hef heyrt! Þegar þeir félagar tóku upp fyrsta myndbandið (já fyrsta) við þetta lag þá fór Robin til konunnar sinnar og spurði hana hvort það…

Breikað við Bach – Heimsmeistarar í breikdansi sýna í Hörpu

image001

Þann 14. júní eða föstudaginn eftir viku verður snilldarviðburður í Hörpunni en þá mæta hingað heimsmeistarar í breikdansi til að sýna listir sínar við undirleik klassískrar tónlistar. Í Red Bull Flying Bach sannar goðsagnakenndi breikdanshópurinn Flying Steps og óperustjórnandinn Christoph Hagel hversu vel breikdans og barokktónlist þýska tónskáldsins J. S. Bachs eiga saman. Sjáið kröftugan…

TÓNLIST: Get Lucky með Daughter – Snilldar ‘cover’ útgáfa

untitled_zps9bc187f4

Get lucky er án alls vafa lag sumarsins enda næstum ekki mögulegt að finnast þetta leiðinlegt lag, slíkur gleðigjafi og gæðasmíð sem það er. Fæstir ná þó textanum sem, eins og svo oft vill vera með diskólög af gamla skólanum, er ótrúlega innihaldsríkur. Það er ekkert endilega verið að jarma út í loftið hérna… og…

Eurovision: Teknótæfurnar frá Noregi

Margaret Berger

Nú er Eurovision söngkeppnin nýafstaðin og margir nýjir listamenn sem komu á sjónarsviðið. Þó hin krúttlega Emilie frá Danmörku hafi unnið þá var framlag Noregs í mestu uppáhaldi hjá mér. Ég er ekki mikill Eurovision aðdáandi og það eru mjög fá lög sem mér finnst góð í þeirri keppni, en Euphoria þykir mér langflottasta lag…

EUROVISION: Finnska söngkonan Krista gerði allt vitlaust!

article-2326423-19D72FC1000005DC-697_634x466

Finnska söngkonan Krista sem söng lagið „Marry me“ (ding dong) í Eurovision komst uppúr seinni riðlinum ásamt Eyþóri okkar. Það sem vakti þó mesta athygli í atriði söngkonunnar er að hún kyssir eina bakraddasöngkonu sína í lok lagsins og margar af íhaldsamari þjóðum í Evrópu eru kolbrjálaðar yfir þessu öllu saman! Sjálf segir Krista að…

LJÓSMYNDUN: Hrikalega skondnir hljómsveitaraðdáendur

Þessir eru fyndnastir og allir elska þeir engan annann en Rod Stewart!

  Fyrir skemmstu skrifaði ég um breska ljósmyndarann James Mollison og seríu hans af ólíkum börnum þessa heims og svefnstöðum þeirra. Stórkostlegur myndaþáttur sem hafði mikil áhrif á mig og ég hvet þig til að skoða hann HÉR en þessum snjalla ljósmyndara er sannarlega meira til lista lagt. Eftir svolítið ‘gúggl’ um manninn rakst ég á þessar…

Af heillandi ævi ófríða kvennamannsins Serge Gainsbourg

Serge Gainsbourg

  Fyrir nokkrum árum sá ég kvikmyndin “Gainsbourg (Vie héroïque)”. Hún fjallar um franska söngvarann og tónskáldið Serge Gainsbourg, líklega þekktastur fyrir að stynja lagið Je t’aime…mon non plus, ásamt þáverandi konu sinni Jane Birkin, við ónefndar aðstæður. Gubbupest hafði verið gestur á bænum yfir þá helgina og því lágu heimilismenn þungt haldnir af sjálfsvorkunn….

BEYONCÉ (31): Erótísk og léttklædd á heimstónleikaferð (17 myndir)

Screen Shot 2013-04-16 at 08.53.20

Já, söngkonan Beyoncé sem allir elska er farin af stað með Mrs. Carter túrinn sinn og það er óhætt að segja að öllu er flaggað á sviðinu. Beyoncé er í frekar efnislitlum fatnaði sem sýnir leggina hennar vel, nánast allur fatnaðurinn er aðþrengdur og söngkonan er svo sannarlega ekki hrædd við að sýna kroppinn sinn…

HOLLYWOOD: Léttklæddar á Coachella tónlistarhátíðinni

Screen Shot 2013-04-15 at 12.20.48

Coachella tónlistarhátíðin var haldin um helgina í Kaliforníu þangað sem hver stórstjarnan kom á fætur annarri og naut tónlistarinnar. Hátíðin er ein sú stærsta í Bandaríkjunum og margar þekktar stórstjörnur mæta enda hátíðin er orðin þekkt fyrir það að vera eitt stærsta partý ársins og allir virðast skemmta sér konunglega. Léttur klæðnaður virðist jafnframt einkenna…

AUGNAYNDI: 10 sexý söngvarar með dásamlega rödd

Adam Levine

Það er fátt betra en að hlusta á ljúfa tóna og ekki skemmir fyrir ef söngvarinn er myndarlegur. Sumir söngvarar hafa þann eiginleika að hrífa mann bæði með söng sínum og persónutöfrum á meðan að aðrir ættu bara að halda sig við stúdíóið. Þessir söngvarar hér að neðan eru gott dæmi um kynþokkafullt útlit ásamt því…