Færslur í flokknum: Myndbönd

Eurovision: Teknótæfurnar frá Noregi

Margaret Berger Nú er Eurovision söngkeppnin nýafstaðin og margir nýjir listamenn sem komu á sjónarsviðið. Þó hin krúttlega Emilie frá Danmörku hafi unnið þá var framlag Noregs í mestu uppáhaldi hjá mér.

Ég er ekki mikill Eurovision aðdáandi og það eru mjög fá lög sem mér finnst góð í þeirri keppni, en Euphoria þykir mér langflottasta lag sem hefur ratað í þessa keppni til þessa. Verandi teknótæfa í mér er því ekki skrítið að ég hreifst af norska laginu "I feed you my love" og fleiri hafa greinilega hrifist þar sem það endaði í 4 sæti sem er ansi gott.

Karin ParkÉg fór að skyggnast í bakgrunn söngkonunnar og lagsins og komst að því að lagið er samið af sænskri elektrótónlistarkonu sem heitir Karin Park. Karin Park er ansi þekkt í danstónlistarheiminum og þá fyrir tónlist í anda "The Knife" og "Röyksopp", hún hefur unnið 4 norsk "Grammy" verðlaun og á aðdáendur á borð við David Bowie og Massive Attack. Eftir keppnina fletti ég upp söngkonunni Margaret Berger og mér til mikillar gleði og furðu er hún frá lítilli eyju sem heitir Hitra og er í Þrándheimsfirði í Noregi, það er 4000 manna eyja sem afi minn var frá og ég á þar ansi marga ættingja, svo hver veit nema við séum frænkur og teknó sé í blóðinu okkar ;) Margaret Berger varð þekkt í heimalandinu þegar hún keppti í Idol árið 2004 og gaf í framhaldi út tvær plötur sem rötuðu báðar á vinsældalistana í Noregi, tónlist hennar er aðeins poppaðri en tónlist Karinar og þessvegna fannt Karin betur passandi að Margaret tæki lagið en hún sjálf. Í viðtali við Karin Park í Glamour magazine segist hún hafa lengi hafa verið að hugsa um að fá Margaret Berger til að taka lag eftir sig og ákvað að slá til þegar hún samdi lagið "I feed you my love" og senda í Eurovision. Margaret Berger var stórglæsileg á sviðinu í töff hvítum kjól í speisuðum stíl.  

Ég er svaka sátt að hafa uppgötvað Karin Park og Margaret Berger og ætla að fylgjast með þeim í framtíðinni.

Margaret Berg- I feed you my love Karin Park- Restless:  

Eurovision: Teknótæfurnar frá Noregi

Margaret Berger

Nú er Eurovision söngkeppnin nýafstaðin og margir nýjir listamenn sem komu á sjónarsviðið. Þó hin krúttlega Emilie frá Danmörku hafi unnið þá var framlag Noregs í mestu uppáhaldi hjá mér. Ég er ekki mikill Eurovision aðdáandi og það eru mjög fá lög sem mér finnst góð í þeirri keppni, en Euphoria þykir mér langflottasta lag…

BEYONCÉ (31): Rifjar upp fortíðina í PEPSI auglýsingu

Screen Shot 2013-04-04 at 13.33.37

Söngkonan Beyoncé hefur í mörg ár verið „talskona“ fyrir Pepsi og nýjasta auglýsingin frá henni er ekker slor. Þar er söngkonan að æfa sig að dansa og ákveður að fá sér smá sopa af Pepsi en þá fara hlutirnir að gerast. Í speglinum sér Beyoncé sjálfa sig úr gömlum tónlistarmyndböndum sínum og hennar eigin sjálf…

MARKAÐSMÁL: Experience Led Marketing – Þetta snýst um upplifun!

MARKAÐSMÁL: Experience Led Marketing

Guði sé lof fyrir TED. Þvílíkur vettvangur til að deila hugmyndum og fróðleik og það á skemmtilegum og mannlegum nótum. Amanda Palmer er listamaður sem hefur vakið athygli fyrir það traust sem hún ber til aðdáenda sinna. Hún býður tónlist sína frítt á netinu en treystir því að aðdáendur sínir muni borga fyrir hana. Það…

ÚTLIT: Svona getur þú litið út fyrir að vera grönn á myndum

Screen Shot 2013-03-14 at 20.42.48

Við viljum öll líta vel út á myndum og oftast kunnum við mikið betur við myndir af okkur þar sem við erum agalega sætar. Jafnvel þó þær gefi ekki raunhæfa mynd af því hvernig við lítum út svona í eigin persónu. En það er samt ekkert að því – allir vilja vera sætir. Svo einfalt…

JENNIFER LOPEZ (43): „Allir hafa einhvern sérstakan eiginleika“

Screen Shot 2013-03-05 at 16.41.29

Tímaritið Glamour er að koma með nýtt blað á markaðinn sem nefnist „Glam Belleza Latina“ og eins og nafnið gefur til kynna þá er blaðið tileinkað konum frá latino menningunni. Jennifer hafði þetta að segja um latino konur: Fegurð sem er „Latino“ er eins og regnboginn, við höfum svart, hvítt og karamellu. Við erum með ljóshærðar…

JÓN GNARR (46): Heillaður af stúlkum við síldarsöltun – Myndband

Screen Shot 2013-02-19 at 14.17.30

Um þessar mundir stendur yfir dásamleg málverkasýning á Kjarvalsstöðum. Sýningin sem ber heitir FLÆÐI er eitthvað sem enginn fagurkeri ætti að láta framhjá sér fara. Á þessari óvenjulegu sýningu gefst almenningi tækifæri til að sjá stóran hluta af safneign Listasafns Reykjavíkur. Sýningin tekur stöðugum breytingum þá tæpu fjóra mánuði sem hún stendur yfir en verkum…

WOW! Þessar kunna að hrista sig – MYNDBAND

wow

Flugfreyjurnar hjá WOW air láta ekki sitt eftir liggja þegar kemur að Harlem Shake gleðinni sem hefur farið eins og eldur um sinu síðustu daga. Hér má sjá myndband sem er tekið um borð í einni af vélum félagsins og við landganginn. Þarna eru allir hressir en þó aðallega „fluffurnar“ sem hafa eflaust gott af…

MYNDBAND: Rihanna kynþokkafull í baði

Riri

Ég bíð alltaf spennt eftir nýjum tónlistarmyndböndum frá Rihönnu – eftir tískunni, strákunum og hárinu! Ég varð hinsvegar fyrir svolitlum vonbrigðum með nýjasta myndband hennar við lagið Stay. Myndbandið er nú samt fallegt – Rihanna skartar sínu fegursta, nakin í baðkari þar sem húðflúr hennar fá að njóta sín. …en hver er þessi Mikky Ekko? NAMMI…

HOLLYWOOD: Lady Gaga og Tony Bennett ætla að taka upp plötu saman

Tony Bennett og Lady Gaga á innsetningarhátíðinni

Söngkonan Lady Gaga og stórsöngvarinn og goðsögnin Tony Bennett hafa ákveðið að gefa saman út plötu. Dúóið söng saman á innsetningarhátíðarballi forseta Bandaríkjanna nú fyrr í vikunni og áður hafa þau tekið saman upp lagið „The Lady is a Tramp“. Gaga sagði á Twitter síðunni sinni áður en þau sungu á hátíðinni að myndarlegi maðurinn…

HOLLYWOOD: Adele alsæl á Golden Globe, Taylor Swift sýndi hroka

Screen Shot 2013-01-16 at 09.10.11

Breska söngkonan Adele var svo sannarlega með endurkomu ársins á Golden Globes verðlaunahátíðinni sem var haldin á sunnudagskvöldið. Söngkonan vann í flokknum besta lagið fyrir lag sitt „Skyfall“ sem er úr samnefndri James Bond kvikmynd. Adele átti greinilega alls ekki von á því að fá verðlaunin og var nánast orðlaus þegar hún kom upp á…