Færslur í flokknum: Meðmælin

BÍÓ: Epic í Laugarásbíói - Epic skemmtun fyrir þig og krakkana!

epicTeiknimyndin Epic sem nú er verið að sýna í Laugarásbíó fjallar um unglingsstúlku sem kemur til þess að búa hjá pabba sínum en pabbinn er vísindamaður - vísindamaður sem trúir á töfraheim lítilla vera!

Sagan er þroskasaga þessarar stelpu, þar sem óvæntir atburðir hafa áhrif á það hvernig hún fer að sjá heiminn í öðru ljósi. Raunar er henni varpað inn í aðra veröld. Þar liggur allt undir því að henni takist að standa undir verkefni sem henni er falið. Þar kynnist stúlkan einnig álfadreng sem á sama hátt og hún þarf að þroskast og bera vissa ábyrgð.

Í töfraveröldinni á sér stað mikil barátta á milli góðs og ills. Við fylgjumst með stúlkunni og álfadrengnum taka afstöðu og stíga inn í verkefnin sem þeim hafa verið falin. Þau þurfa að vera hugrökk.

Myndin er stútfull af sætum og fyndnum augnablikum. Svo ekki sé minnst á hversu vel gerð hún er þessi!

 Hér má sjá brot úr myndinni:

Ég mæli virkilega með þessari fyrir börn og foreldra – góða skemmtun!

 

KVIKMYNDIR: Hver var Hannah Arendt?

HannahArendtFix

Um þessar mundir er enn í sýningu kvikmynd um Hönnu Arendt í Bíó Paradís, en myndin var svo vinsæl á Þýskum kvikmyndadögum að ákveðið var að hafa hana áfram í sýningu. Hún fjallar um heimspekinginn og „fjölfræðinginn” Hönnu Arendt sem skók heiminn með því sem hún kallaði „lágkúrulega illsku“. Arendt var frá Þýskalandi og af…

Luxe Oile frá Wella – Tvær flugur í einu höggi, hitavörn og olía í enda

Luxe Oile frá Wella – Tvær flugur í einu höggi, hitavörn og olía í enda

Ég á nokkrar tegundir af hitavörnum og hárolíum. Mér finnst gott að halda mig ekki alltaf við sömu vörurnar vegna þess að þegar ég skipti á milli finnst mér það auka á virkni efnanna. Þetta er hægt að heimfæra yfir á allar snyrti- og hárvörur eins og margir snyrti- og förðunarfræðingar hafa bent á í…

Karma fyrir fugla: Stórkostlegt verk um konur!! Skrifað af konum

karma

Karma fyrir fugla er nýtt leikrit, frumraun þeirra Kristínar Eiríksdóttur og Kari Ósk Grétudóttur sem leikskálda en þær eru myndlistamenntaðar. Áður hefur Kristín m.a. gefið út ljóðabækur og skáldsöguna Hvítfeld (sem hefur fengið góða dóma). Þessar ungu konur skrifa hér magnaðan texta. Það má segja að verkið sé mjög hugrakkt, það er afar beitt og…

15 raunhæf sparnaðarráð fyrir námsmenn eins og mig og þig

hugsa

Þegar ég var yngri þá vann ég mér inn frekar mikið af tekjum sem ég veit ekki alveg hvað varð um… eða jú ég veit alveg hvað varð um þær en ég skil bara ekki af hverju mér fannst mikilvægt að eyða 20-30.000 krónum (sem var hellings peningur árið 2002) í Diesel buxur. Athugið að…

SNYRTIVÖRUR: Ferskur og fallegur ilmur frá L´OCCITANE

loccitane-valentines-day

L´occitane húðvörurnar eru í miklu uppáhaldi hjá mér – ilmirnir frá þeim eru alltaf ferskir og húðkremin þeirra eru unaðsleg að mínu mati. Nú er komin út ný ilmvatnslína frá þeim sem er aðeins til í takmörkuðu upplagi- svokallað Limited edition. Línan inniheldur Kirsuberjailm en hönnuðir L’Occitane fengu andagift frá fjallasvæðum Luberon. Þar eru kirsuberjatrén…

NÝTT: Bobbi Brown BB kremið – Undrakrem með ofurvörn

Bobbi-Brown-BB-cream

Bobbi Brown er snillingur þegar kemur að því að koma fram með nýjungar í línunni sinni en nýjasta afurð hennar er BB krem. BB kremin verða sífellt vinsælli hjá snyrtivörufyrirtækjum og ég verð að viðurkenna það persónulega að kremin eru einfaldlega það skemmtilegasta sem ég hef prófað af snyrtivörum hingað til. Að sjálfsögðu svíkur Bobbi…

JÓN GNARR (46): Heillaður af stúlkum við síldarsöltun – Myndband

Screen Shot 2013-02-19 at 14.17.30

Um þessar mundir stendur yfir dásamleg málverkasýning á Kjarvalsstöðum. Sýningin sem ber heitir FLÆÐI er eitthvað sem enginn fagurkeri ætti að láta framhjá sér fara. Á þessari óvenjulegu sýningu gefst almenningi tækifæri til að sjá stóran hluta af safneign Listasafns Reykjavíkur. Sýningin tekur stöðugum breytingum þá tæpu fjóra mánuði sem hún stendur yfir en verkum…

Föstudagur: Svalandi kokteill eftir afkastamikla vinnuviku – Trítaðu þig!

Screen Shot 2013-02-15 at 15.44.34

Þessi kokteill er bæði afar bragðgóður, hressandi og inniheldur líka góð næringarefni og vítamín. Er hægt að biðja um eitthvað meira?! Andoxun og Kristall með kókoshnetuvatni 3cl ííískaldur Smirnoff vodka 12 cl Kristall plús með kókosvatni 6cl eða dass af ísköldum Virkni Andoxun safa Helltu fyrst Smirnoff og Virkni Andoxun í glasið, toppaðu upp með Kristal…

SÆTIR STRÁKAR: 18 Himneskir herramenn sem örva fegurðarskynið

Screen Shot 2013-02-11 at 20.47.51

Þetta mánudagskvöld er búið að vera ágætt hingað til og Michael Palin með Brasílíuþáttinn á RÚV er svosum ágætur líka. En hann er ekki jafn sætur og strákarnir í myndasafninu sem birtist hér að neðan. Reyndar myndi líklegast líða yfir okkur flestar ef svo margir fallegir karlmenn kæmu allt í einu saman á tölvuskjánum… svo…

KOKTEILLINN: French 75 – Frískandi gin og kampavín

madmen

Við vitum ekki með þig en Pjattrófurnar elska þættina um auglýsingafólkið á Madison Avenue. Öðru nafni Mad Men. Og við vitum ekki með þig en við höfum tekið eftir því að þetta fólk er ALLTAF að fá sér flotta kokteila, helst í vinnunni. Hér er æðislegur kokteill í anda Mad Men en hann á uppruna…