Færslur í flokknum: Meðmælin

SNYRTIVÖRUR: Grænt og geggjað naglalakk frá YSL

YSL Makeup Collection for Spring 2013 www.makeuptemple.blogspot.com-001

Ég er nagalalakkafrík og er löngu búin að missa töluna á því hversu mörg naglalökk ég á, þau eru meira að segja í sérstakri "fansý" skál inn á baðherbergi hjá mér!

0.365x365 Yves Saint Laurent hefur ekki svikið mig þegar naglalökk eru annarsvegar og í vorlínu þeirra fyrir árið 2013 er grænn litur sem ég er mjög skotin í, hann heitir Jade Imperal og er númer 34. images Ég ákvað um daginn að halda matarboð og korter í boðið var ég ekki ennþá búin að naglalakka mig og var ekki alveg viss  hvort ég ætti að setja eitthvað á neglurnar en ég var búin að stara á þennan lit í skálinni allan daginn og lét vaða, æji þá verður þetta bara eitthvað klúður hélt ég!

YSL Jade Imperial

Neglurnar voru lakkaðar og ég var sko ekki svikin, ein umferð og málið er dautt! Lakkið þornar á núll einni og glansar eins og enginn sé morgundagurinn. Pensillinn er flatur á burstanum og það finnst mér mjög mikill kostur því þannig er ég miklu fljótari að lakka mig. Lakkið endist og endist og veitir einnig góða vörn og gefur nöglunum raka.  

ysl jade imperial 1

Stelpur ég er að segja það, þetta er sumarliturinn, grænn, vænn og hrikalega smart litur sem passar við allt!

SNYRTIVÖRUR: Grænt og geggjað naglalakk frá YSL

Screen Shot 2013-04-26 at 07.53.57

Ég er nagalalakkafrík og er löngu búin að missa töluna á því hversu mörg naglalökk ég á, þau eru meira að segja í sérstakri „fansý“ skál inn á baðherbergi hjá mér! Yves Saint Laurent hefur ekki svikið mig þegar naglalökk eru annarsvegar og í vorlínu þeirra fyrir árið 2013 er grænn litur sem ég er…

SNYRTIVÖRUR: PureDKNY – Rósarilmur sem hjálpar fátækum konum

PureDKNYADropofRosePerfume

PureDKNY A Drop Of Rose frá Donna Karan er léttur og kvenlegur ilmur út í gegn. Uppistaða ilmsins er tyrknesk rós handtýnd í Isparta dalnum í Tyrklandi. Framleiðsluferlið er af gamla skólanum sem er nánast óháð allri nútímatækni. Úr framleiðsluferlinu kemur hrá rósarolía sem er sett í ilmvatnið. Ilmurinn er sem sagt holdgun rósar í…

VEITINGASTAÐIR: Dýrðlegur matur og vínflaskan á 3600 kr á MAR*****

Screen Shot 2013-05-13 at 15.08.48

Nýlega opnaði veitingastaður við höfnina í Reykjavík sem býður upp á góðgæti úr eðal íslensku hráefni framreitt á suður – ameríska og evrópska vísu. Staðurinn er einstaklega vel staðsettur við höfnina þar sem mjög skemmtileg menning hefur verið í vexti síðustu misseri. Á sama stað er einnig að finna hönnunarverslunina Mýrina sem selur fallegan varning…

SNYRTIVÖRUR: See By Chloé – Sumarilmurinn minn í ár

seebychloe-fragancia

Sumar eitt vann ég í snyrtivörudeild. Á milli þess sem ég afgreiddi viðskiptavini og reyndi mitt besta að spreyja ekki beint í augun á þeim (slysin gerast) þá dundaði ég mér við að lykta af hinum og þessum ilmvötnum sem verslunin hafði upp á að bjóða. Lyktarskynið er eitt áhugaverðasta verkfæri sem líkaminn okkar býr…

BÍÓ: Fjallakvikmyndaátíð í Bíó Paradís í kvöld OG annað kvöld!!

banff

Ég fór á fjallakvikmyndahátið í Bíó Paradís áðan og það var geggjað! Um er að ræða tvö kvöld svo að þú ert ekki búin að missa af öllu fjörinu en það er Íslenski alpaklúbburinn í samstarfi við Bíó Paradís, Íslenska fjallaleiðsögumenn og 66° Norður sem halda hina árlegu BANFF fjallakvikmyndahátíð – 1. og 2. maí….

FERÐALÖG: Roald í Barcelona – „Fyrsta ferðin var töfrum líkust“

908705_10151604043439540_532343253_n

Bókmenntafræðingurinn og blaðamaðurinn Roald Viðar veit fáar borgir jafn heillandi og Barcelona, eða Barselóna, höfuðborg Katalóníu á Spáni en þar er hann sammála mörgum samlöndum sínum. Hann segist hafa kolfallið fyrir henni þrátt fyrir að hafa verið rændur flestu sem skiptir máli í einni af sinni fyrstu ferðum og hann kann vel að meta barinn þar…

SNYRTIVÖRUR: Vorlína Lancome- IN LOVE – Sæt og sumarleg

emma

Lancome er merki sem mér finnst alltaf gott, það er eiginlega alveg sama hvað ég prufa frá merkinu ég verð aldrei svikin og nýja vorlínan þeirra svíkur heldur ekki. Ég er búin að prófa nokkar vörur úr þessari fallegu línu og ég er skotin í þeim öllum, get ekki valið hver er uppáhaldið mitt því…

Af heillandi ævi ófríða kvennamannsins Serge Gainsbourg

Serge Gainsbourg

  Fyrir nokkrum árum sá ég kvikmyndin “Gainsbourg (Vie héroïque)”. Hún fjallar um franska söngvarann og tónskáldið Serge Gainsbourg, líklega þekktastur fyrir að stynja lagið Je t’aime…mon non plus, ásamt þáverandi konu sinni Jane Birkin, við ónefndar aðstæður. Gubbupest hafði verið gestur á bænum yfir þá helgina og því lágu heimilismenn þungt haldnir af sjálfsvorkunn….

Verðlaunasýningin Walking Mad: Mikil orka á sviðinu, auðvelt að hrífast með

Walking-Mad-I

Síðustu helgi var frumsýning á Walking Mad í Borgarleikhúsinu en það er ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN sem flytur verkið á þessu fertugasta starfsári flokksins! Það er Johan Inger, fyrrverandi leikrænn stjórnandi Cullberg Balletflokksins og meðlimur í Konunglega balletflokknum í Svíþjóð og Netherlands Dance Theatre, sem hefur skapað glæsilegt verk fyrir níu dansara. Dansverkið er sett fram við…

KVIKMYNDIR: Hver var Hannah Arendt?

HannahArendtFix

Um þessar mundir er enn í sýningu kvikmynd um Hönnu Arendt í Bíó Paradís, en myndin var svo vinsæl á Þýskum kvikmyndadögum að ákveðið var að hafa hana áfram í sýningu. Hún fjallar um heimspekinginn og „fjölfræðinginn” Hönnu Arendt sem skók heiminn með því sem hún kallaði „lágkúrulega illsku“. Arendt var frá Þýskalandi og af…