Færslur í flokknum: Lífstíll

SAMSKIPTI: 10 leiðir til að forðast vandræðalegheit í veislum

Screen Shot 2013-05-23 at 07.21.50Það er ekki endilega öllum gefið að kunna sig á mannamótum. Fyrir mörgum, og þá kannski sérstaklega okkur íslendingum, getur það flækst fyrir að kunna alla mikilvægu 'mannasiðina' sem gera mann að góðum gesti og skemmtilegum borðfélaga.

Hér eru tíu heilræði sem ættu að einfalda þér svolítið lífið næst þegar þú ferð í formlegt boð á vegum vinnunnar, afmælisveislu með nýjum vini, í opnun eða á kynningar þar sem margir koma saman og þekkjast ekki endilega mjög vel.

1. Gerðu heimavinnuna þína

Meðan þú ert að gera þig til fyrir veisluna eða í bílnum á leiðinni er ágætt að undirbúa sig aðeins. Rifja upp bóka eða kvikmyndagagnrýni sem þú hefur lesið og enn betra, rifjaðu upp það sem þú veist um manneskjuna sem býður þér til veislunnar. Til dæmis hvort hún eða hann hefur gaman af að fara á skíði, stunda sjósund, skoða myndlist eða ganga á fjöll. Þá er svo auðvelt að hefja spjall um t.d.hvaða tind eigi að klífa næst eða hvaða sýningu eigi að sjá næst.

2. Að kyssa eða ekki kyssa?

Það er ekki langt síðan íslendingar tóku upp á því að kyssast og faðmast þegar við hittumst. Hér áður fyrr vorum við eins og 'finnar' svona frekar stífar týpur en blessunarlega er þetta aðeins að mýkjast upp. Grundvallarreglan er að heilsast með handabandi en ef þú þekkir manneskjuna vel, og henni er vel við það, er gott að smella einum á kinn. Að sama skapi skaltu ekki hörfa undan ef einhver vill smella á þig einum og ef þú hefur einu sinni heilsað með kossi er gott að halda því við því þegar þú hittir manneskjuna næst, annars gæti hún eða hann upplifað höfnun.

Screen Shot 2013-05-23 at 07.24.45

 3. Leggðu nöfn á minnið

Fólk á það til að gleyma nöfnum ansi hratt þegar við erum kynnt fyrir hvort öðru í partýum og veislum en gerðu þitt besta til að leggja nöfnin á minnið. Hægðu á þér og vertu meira í núinu rétt á meðan farið er yfir nöfnin. Tengdu þau við eitthvað sem þú manst örugglega svo að þú þurfir ekki að spyrja aftur. Það er gott að muna nöfn. Ef þú hinsvegar gleymir nafni eftir að hafa verið kynnt skaltu bara kurteisislega spyrja aftur og segjast ekki hafa tekið nógu vel eftir, þetta skilja flestir. Einnig er hægt að spyrja bara aðra sem þú þekkir betur í veislunni svo lítið beri á.

4. Ekki halda aftur af þér

Ekki vera óþarflega stuttorð ef fólk gefur sig á tal við þig í boði. Til dæmis ertu spurð að því hvað þú starfir við, þá er gott að svara hvar og hversu lengi þú ert búin að sinna starfinu. Hvort þú hefur gaman af og svo framvegis bara passa sig að fara ekkert yfir strikið...  Einnig er hægt að segja frá áformum um frí fyrir sumarið og öðru skemmtilegu sem er á döfinni.

5. Leyfðu viðmælandanum að njóta sín

Fólki finnst mjög gaman að tala um sjálft sig svo það er gott að vera góð í að hlusta. Ef fólk hefur t.d. verið á málverkasýningu eða leikriti er gott að spyrja hvað þeim fannst best við verkið, hvernig leikararnir stóðu sig og þ.h. Það er líka hægt að fá fólk til að brjóta ísinn með því að minnast á flík sem þau eru með eða skartgrip, hvort hann hafi sérstaka merkingu og þessháttar.

6. Ef þú ert alveg að verða uppiskroppa með umræðuefni...

...þá er ágætt að tala bara um það sem er að gerast í kringum þig. Til dæmis veitingarnar, tónlistina, röðina í matinn og svo framvegis. Ef fólk tekur þátt í 'tjitt tjattinu' þá eruð þið komin eitthvað áleiðis. Önnur leið sem aldrei bregst er að spyrja viðkomandi hvernig hann/hún tengist gestgjafanum og taka það svo þaðan.

7. Þögn er ekki endilega vandræðaleg

Ekki fara í 'panikk' þó að fólk svari ekki alveg strax. Þögnin er sjaldnast eins löng og þú heldur. Mundu að fólk þarf kannski aðeins að melta það sem þú segir við það og stundum er bara viðeigandi að segja ekkert. Ef þú hefur á tilfinningunni að hin manneskjan sé að reyna að koma sér í burtu skaltu bara leyfa henni það annars er að grípa í einhver af ráðunum hér að ofan.

Screen Shot 2013-05-23 at 07.22.29

8. Kynntu fólk fyrir hvort öðru

Það er enn ekki komið almenninlega í menningu íslendinga að kynna fólk fyrir hvort öðru. Við erum kannski tvær að ganga niður laugaveg þegar ein hittir einhverja sem hún þekkir og á meðan stendur vinkonan vandræðaleg álengdar og hlustar á samtal sem henni er ekki boðið að taka þátt í. Þetta er auðvitað eitthvað sem þarf að bæta. Þú ættir alltaf að kynna fólk fyrir hvort öðru. Þegar þú kynnir fólk er mjög gott að bæta við hvað manneskjan gerir. T.d. "Þetta er Kristín, hún vinnur sem kennari í Hagaskóla og þetta er Viðar, hann var að flytja hingað frá Akureyri með manninum sínum og hundum." Þetta gerir tenginguna meiri og þá verður auðveldara að muna nafnið. Ef þú svo allt í einu manst ekki hvað önnur manneskjan heitir þá er gott að kynna þá sem þú þekkir og gera einhverskonar bendingu til hinnar sem mun auðvitað átta sig á að þú gleymdir þér og fríska upp á minnið fyrir þig.

9. Það er alltaf einhver leiðindakjói í veislunni

Það er bókað að þú átt alltaf eftir að rekast á einhverja týpu í boðinu sem er ekki endilega sú skemmtilegasta.
  • Týpa 1 er þessi sem þú hefur margoft hitt áður á allskonar viðburðum en lætur alltaf eins og hann/hún hafi aldrei séð þig áður á ævinni. Best er að heilsa bara manneskjunni með því að nikka höfðinu og halda svo bara áfram.
  • Týpa 2 er þessi sem kemur of nálægt þér, treður sér inn fyrir þitt persónulega rými (eins og í ópal auglýsingunum). Þá er gott að taka skef aftur á bak og halda drykknum sínum bara þannig að það er ekki hægt að koma nær.
  • Týpa 3 getur ekki hætt að tala um sjálfa sig og spyr þig bara aldrei út í neitt um sjálfa þig. Ef fólk er svo leiðinlegt er gott að reyna bara að koma sér í burtu en til þess eru nokkrar aðferðir...

10. Flótti

Byrjaðu á að nota sögnina að VERÐA. Ég 'verð' að tala við þessa konu. Ég 'verð' að hringja smá símtal núna. Ég 'verð' að fá mér að borða, hef ekkert borðað í allan dag... og svo framvegis. Til að virka ekki dónaleg er góð hugmynd að rifja eitthvað upp úr samtalinu áður en þú kveður, t.d. segja "Gaman að heyra þetta um bústaðinn ykkar, hlakka til að heyra hvernig þetta þróast" en láta sig svo hverfa.  Ef þú lendir í miklum vandræðagangi með að losna út úr samtali getur verið gott að geta sent maka eða vini einhverskonar boð um að koma að "bjarga" sér. Til dæmis með því að fara að dansa eða skreppa saman afsíðis af því þið 'verðið' að ræða eitthvað mál.

Vonandi gagnast þessi heilræði. Samskipti eru það mikilvægasta í lífi okkar og ef fólk er nokkuð sleipt í þeim má reikna með að vegir lífsins verði þeim færari.

Fólk vill hafa það allskonar

SAMSKIPTI: 10 leiðir til að forðast vandræðalegheit í veislum

Screen Shot 2013-05-23 at 07.21.50

Það er ekki endilega öllum gefið að kunna sig á mannamótum. Fyrir mörgum, og þá kannski sérstaklega okkur íslendingum, getur það flækst fyrir að kunna alla mikilvægu ‘mannasiðina’ sem gera mann að góðum gesti og skemmtilegum borðfélaga. Hér eru tíu heilræði sem ættu að einfalda þér svolítið lífið næst þegar þú ferð í formlegt boð…

SPAKMÆLI: Það er slæmur kokkur sem ekki getur sleikt sína eigin fingur“

nigella_lawson

Við elskum flest að borða góðan mat. Sum kannski aðeins meira en önnur en líklegast er óhætta að fullyrða að langflestum finnist nú mjög gott að borða. Og okkur finnst gaman að handleika góð hráefni, blanda þeim saman, dreypa á góðum vínum og halda endalaust skemmtileg matarboð.  Hugsuðir og rithöfundar heimsins eru með okkur þarna…

LJÓSMYNDUN: Hrikalega skondnir hljómsveitaraðdáendur

Þessir eru fyndnastir og allir elska þeir engan annann en Rod Stewart!

  Fyrir skemmstu skrifaði ég um breska ljósmyndarann James Mollison og seríu hans af ólíkum börnum þessa heims og svefnstöðum þeirra. Stórkostlegur myndaþáttur sem hafði mikil áhrif á mig og ég hvet þig til að skoða hann HÉR en þessum snjalla ljósmyndara er sannarlega meira til lista lagt. Eftir svolítið ‘gúggl’ um manninn rakst ég á þessar…

DEKUR: Reykjavík SPA – Eitt best geymda leyndarmál borgarinnar

rvkspa

Við á Pjatt.is höfum nýlega tekið miklu ástfóstri við baðstofuna á Grand Hotel sem kallast einfaldlega Reykjavík SPA. Þarna er dásamlegur leynistaður til að koma saman í fullkomna slökun, panta léttar veitingar og fara yfir daginn og veginn. Jafnvel á smá trúnó því algengt er að hinir gestirnir skilji ekki íslensku ;) Reykjavík SPA er…

LJÓSMYNDIR: Hér sofa börn heimsins, í misjöfnum bólum

Screen Shot 2013-05-14 at 00.20.06

Sofa manna börn í mjúku rúmi, bía og kveða og pabbi þau svæfir. Svo segir í gömlu íslensku ljóði eftir Sveinbjörn Egilsson en ljóst er að öll manna börn hafa það eigi svo gott. Í þessu áhrifamikla myndasafni eftir ljósmyndarann James Mollison má sjá hvar börn víðsvegar um veröldina leggjast til svefns. Hér eru orðin…

KYNLÍF: Skiptir stærðin í alvöru svona miklu máli?

measuring breasts

Hvað er málið með allt þetta stóra? Af hverju á sumt að vera stórt en annað lítið? Hversvegna er “betra” að vera með stór brjóst en lítil og hvað er þetta með stóru tippin? Ef taka má mark á öllum þessum “increase your penis size” póstum sem karlmenn (og konur) fá er hægt að draga…

PENINGAR: 8 ástæður þess að þú átt ekki nóg af þeim

flickr_orin_zebest

Það er ekki hvað þú vinnur þér mikið inn af peningum heldur hvernig þú ferð með þá sem skiptir öllu máli. Rík kona verður auðveldlega fátæk og fátæk kona getur orðið vel efnuð með tímanum. Þetta er allt saman afstætt en nokkur atriði eru ekki afstæð, til dæmis eins og það borgar sig að eiga…

„Sleikjó-augnablik“

sleikjó

Ég rakst á þennan skemmtilega fyrirlestur um daginn á einum af mínum fjölmörgu TED-leiðöngrum, ég held að hann tali alveg fyrir sig sjálfur! Hefur þú átt „sleikjó-augnablik“? Höfundur: Tinna Eik Rakelardóttir Tinna er nemandi í mannfræði í Háskóla Íslands og stefnir á framhaldsnám í blaða- og fréttamennsku. Hún hefur áhuga á flestu ef ekki öllu…

LÍFIÐ: 4 systur, 1 ljósmynd á ári í 36 ár – Sjáðu þær eldast!

1975

Árið 1975 tók bandaríski ljósmyndarinn Nicholas Nixon upp á því að taka myndir af konu sinni Bebe og systrum hennar þremur. Þessu hélt hann svo áfram á hverju einasta ári, næstu 36 árin til ársins 2010. Á myndunum eru þær alltaf í sömu röð, fyrst – Heather, Mimi, Bebe, svo Laurie. Á fyrstu myndinni er…

FERÐALÖG: Roald í Barcelona – „Fyrsta ferðin var töfrum líkust“

908705_10151604043439540_532343253_n

Bókmenntafræðingurinn og blaðamaðurinn Roald Viðar veit fáar borgir jafn heillandi og Barcelona, eða Barselóna, höfuðborg Katalóníu á Spáni en þar er hann sammála mörgum samlöndum sínum. Hann segist hafa kolfallið fyrir henni þrátt fyrir að hafa verið rændur flestu sem skiptir máli í einni af sinni fyrstu ferðum og hann kann vel að meta barinn þar…