
Þann 14. júní eða föstudaginn eftir viku verður snilldarviðburður í Hörpunni en þá mæta hingað heimsmeistarar í breikdansi til að sýna listir sínar við undirleik klassískrar tónlistar. Í Red Bull Flying Bach sannar goðsagnakenndi breikdanshópurinn Flying Steps og óperustjórnandinn Christoph Hagel hversu vel breikdans og barokktónlist þýska tónskáldsins J. S. Bachs eiga saman. Sjáið kröftugan…

Það verður mikið um dýrðir í Vatnsmýrinni í júlí þegar sex litrík sirkustjöld rísa upp og mynda spennandi SIRKUS ÞORP sem mun standa dagana 4.-14.júlí Llifandi stemning verður allan daginn í þorpinu á meðan hátíð stendur en auk sirkussýninga verða í boði sirkusnámskeið fyrir börn og fullorðna, sirkusljósmyndasýning, óvæntar uppákomur, kaffihús, götuleikhús og skeggjaða konan heilsar upp…

Í kvöld mun Þjóðleikhúsið frumsýna á Stóra sviðinu Engla alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson í nýrri leikgerð Þorleifar Arnar Arnarssonar og Símons Birgissonar. Englar alheimsins er ein ástælasta skáldsaga síðari ára og hafa bæði kvikmyndin og skáldsagan notið fádæma vinsælda. Ljóst er að margir bíða leikgerðarinnar með eftirvæntingu en um leið og forsala hófst varð…

Síðustu helgi var frumsýning á Walking Mad í Borgarleikhúsinu en það er ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN sem flytur verkið á þessu fertugasta starfsári flokksins! Það er Johan Inger, fyrrverandi leikrænn stjórnandi Cullberg Balletflokksins og meðlimur í Konunglega balletflokknum í Svíþjóð og Netherlands Dance Theatre, sem hefur skapað glæsilegt verk fyrir níu dansara. Dansverkið er sett fram við…

Karma fyrir fugla er nýtt leikrit, frumraun þeirra Kristínar Eiríksdóttur og Kari Ósk Grétudóttur sem leikskálda en þær eru myndlistamenntaðar. Áður hefur Kristín m.a. gefið út ljóðabækur og skáldsöguna Hvítfeld (sem hefur fengið góða dóma). Þessar ungu konur skrifa hér magnaðan texta. Það má segja að verkið sé mjög hugrakkt, það er afar beitt og…
Í Þjóðleikhúsinu er verið að sýna verk eftir þekkt breskt leikskáld, Jez Buttersworth, sem heitir á frummáli „Jerusalem“ eftir ljóði Williams Blake. Í uppsetningu Þjóðleikhússins er verkinu: „Fyrirheitna landið – Jerúsalem“ leikstýrt af Guðjóni Pedersen en hann er reyndur leikstjóri sem t.d. leikstýrði verðlaunaverkinu Afmælisveislunni. Fyrirheitna landið – Jerúsalem hefst á því að kynna til…

Ég fór á Macbeth í uppsetningu Þjóðleikhússins um helgina sem leið. Það er skemmst frá því að segja að hér er um að ræða magnað listaverk! Í fyrsta lagi er verkið eitt áhrifaríkasta leikrit fyrr og síðar og af mörgum talið vera það besta sem Shakespeare skrifaði. Texti verksins er margslunginn og þýðingarmikill og innihald…

Síðasta sunnudag skelltum við frumburðurinn okkur á jólaleikritið „Ævintýrið um Augastein“ sem nú er sýnt í Tjarnarbíó. Fyrir vikið komum við feðgin mun fróðari um jólasveinana til baka en Ævintýrið um Augastein er tíu ára gamalt barna og fjölskyldu leikrit sem hefur oftar en ekki verið sýnt á aðventunni. Felix Bergson fór með aðalhlutverkið þegar…

Leitin að jólunum er sýnt í Þjóðleikhúsinu áttunda árið í röð. Þetta bráðskemmtilega barnaleikrit er eftir myndlistarmanninn og rithöfundinn Þorvald Þorsteinsson en hann samdi m.a. bækurnar um Blíðfinn og ævintýrasöngleikinn Skilaboðaskjóðuna. Sýningin Leitin að jólunum hefur verið vinsæl í mörg ár en hún hlaut Grímuverðlaun sem besta barnasýning leikársins 2006. Leitin að jólunum hefur verið…

Leikritið Bastarðar er sýnt í Borgarleikhúsinu og var frumsýnt síðasta laugardag. Um er að ræða samnorrænt samstarf á milli Borgarleikhússins og Vesturports, sænska leikhússins Malmö Stadsteater og hins danska Får302. Verkið er skrifað af Gísla Erni Garðarsyni og bandaríska handritshöfundinum Richard LaGravenese en þeir fengu innblástur úr sögunni um Karamazov bræður eftir Dostojevski. Þeir fóru…