Færslur í flokknum: Bækur

SPAKMÆLI: Það er slæmur kokkur sem ekki getur sleikt sína eigin fingur"

Við elskum flest að borða góðan mat. Sum kannski aðeins meira en önnur en líklegast er óhætta að fullyrða að langflestum finnist nú mjög gott að borða.

Og okkur finnst gaman að handleika góð hráefni, blanda þeim saman, dreypa á góðum vínum og halda endalaust skemmtileg matarboð.  Hugsuðir og rithöfundar heimsins eru með okkur þarna og flest hafa þau látið fleyg orð af vörum falla um matinn sem ku vera mannsins megin.

Hér eru nokkur gullkorn

Hungrið er sterkasta krydd jarðarinnar. Sókrates Í matarboðum skyldu menn borða viturlega, en ekki of mikið, og tala mikið, en ekki of vitursamlega. William Sommerset Maugham                  Eftir góðan málsverð getur maður fyrirgefið hverjum sem er, jafnvel ættingjum sínum. Oscar Wilde Það er slæmur kokkur sem ekki getur sleikt sína eigin fingur. William Shakespeare Þótt sveitamúsin væri feimin að eðlisfari opnaði hún hjarta sitt og hirslur fyrir gömlum vini. Það var engin sú tunna sem hún ekki veitti aðgang að – baunir og korn, ostur, hnetur og skófir – til að geðjast borgarmúsinni. Úr dæmisögum Espós Ekkert jafnast á við fyrsta kaffibolla morgunsins. Honum fylgir fögnuður sem eftirmiðdagskaffi getur aldrei fært þeim sem drekkur það. Sir Oliver Holmes Maður getur hvorki hugsað skynsamlega, elskað af alhug né sofið vel hafi maður ekki fengið góðan kvöldverð. Virginia Woolf

Forrétturinn hefur alltaf haft sérstaka merkingu í mínum huga. Hann minnir mig á barnæsku mína þegar maður velti því fyrir sér hvaða réttur kæmi næst og hvernig hann myndi bragðast. Það sem eftir var máltíðarinnar eyddi maður í að sjá eftir að hafa ekki borðað meira af forréttinum. Saki (H.H. Munro) Aðeins leiðinlegt fólk er skemmtilegt við morgunverðarborðið. Oscar Wilde

SPAKMÆLI: Það er slæmur kokkur sem ekki getur sleikt sína eigin fingur“

nigella_lawson

Við elskum flest að borða góðan mat. Sum kannski aðeins meira en önnur en líklegast er óhætta að fullyrða að langflestum finnist nú mjög gott að borða. Og okkur finnst gaman að handleika góð hráefni, blanda þeim saman, dreypa á góðum vínum og halda endalaust skemmtileg matarboð.  Hugsuðir og rithöfundar heimsins eru með okkur þarna…

BÆKUR: Skýrsla 64 eftir Jussi Adler – Olsen, Bók sem brennir hold

Huggulegur hann Jussi

Danski rithöfundurinn Jussi Adler – Olsen starfaði sem blaðamaður áður en hann hellti sér út í heim skáldsagnaskrifa. Bækur hans um Deild Q hjá dönsku lögreglunni í Kaupmannahöfn hafa slegið í gegn með miklum látum og Carl Mörk, aðalsöguhetjan, er orðinn eftirlætis skáldsagnapersóna fjölmargra dyggra lesenda. Ég var annars hugar í bókabúðinni á Leifsstöð í…

HEIMILI: Afdrep fyrir bókaorma – Griðarstaður á heimilinu

Stórum fataskáp hefur hér verið breytt í flottar bókahillur.

Það er fátt notalegra en að gleyma sér yfir góðri bók og hverfa inn í undraheima skáldsagnarlistarinnar. Þetta verður þó enn betri upplifun ef þú átt sérstakan les-stól eða lestrarhorn heima hjá þér. Svona lítið afdrep inni á heimilinu þar sem hægt er að lesa í ró og næði. Hér gefur að líta nokkur falleg…

BÆKUR: Líf annarra en mín, Hann lærði að þora að elska og þiggja ást

lif_annarra_en_min_175

HVERNIG FLÓÐBYLGJA OG KRABBAMEIN HAFA ÁHRIF Á LÍF ANNARRA… Nýlega kom út bókin Líf annarra en mín eftir franska rithöfundinn Emmanuel Carrére. Sagan hefst í desember árið 2004 þegar höfundurinn er í fríi á Sri Lanka með unnustu sinni Helenu og sonum. Það er algjör tilviljun sem ræður því að þennan örlagaríka morgun, þegar flóðbylgjan…

BÆKUR: LÉTTARI MEÐ LÁG KOLVETNA LÍFSSTÍLNUM (LKL)

LKL_Bok_3D_RGB_72dpi (2)

Nýlega kom út bókin LÁG KOLVETNA LÍFSSTÍLLINN eftir eftir Gunnar Má Sigfússon sem hefur verið einn vinsælasti líkamsræktarþjálfari og heilsuráðgjafi landsins um árabil. Gunnar hefur hér tekið saman allar helstu upplýsingarnar um lág kolvetna lífsstílinn sem hefur farið eins og eldur um sinu um veröldina en á upptök í Svíþjóð. Í stuttu máli byggist mataræðið…

Iðrun: Átök, leyndarmál og blekkingar Tholstrup ættarinnar

Screen Shot 2013-03-26 at 16.27.58

IÐRUN eftir danska rithöfundinn Hanne-Vibeke Holst er klárlega páskalesningin í ár hjá unnendum spennu- og kynslóðasagna. Hér er á ferðinni saga fjögurra kynslóða Tholstrup-ættarinnar sem spannar sjötíu ár og er mjög viðburðarík. Frásögnin hefst við upphaf seinni heimstyrjaldarinnar þegar Þjóðverjar hernema Danmörku og Thorvald, ættfaðirinn og prestur, gengur til liðs við andspyrnuhreyfinguna. Sérann yfirgefur fjölskylduna…

Fimmtíu skuggar frelsis: Eldheitur heimur BDSM elskenda

Fimmtiu_skuggar_frelsis_175

Fimmtíu skuggar frelsis er þriðja bókin og sú síðasta í þríleiknum um Christian Gray og Anastasiu Steel eftir: E L James Christian og Anastasia halda áfram að lenda í óvæntum atriðum í þessari eldheitu ástarsögu. Farið er dýpra í hina gráu skugga Christians og kynnist lesandinn persónu hans betur. Anastasia er orðin sjálfstæðari en hún…

Sumar án karlmanna: Fyrir heimspekilegar pjásur í pásum

Nýlega kom út hjá Vöku-Helgafelli bókin Sumar án karlmanna eftir Siri Hustvedt. Ég gat ekki með nokkru móti staðist þennan forvitnilega titil og nældi mér í eintak. Það jók svo enn á áhuga minn að ég vissi fyrir að Siri er gift einum af uppáhalds rithöfundunum mínum; Paul Auster, og hefur notið samvista við þann…

Draumey velur gleðina – „Við sjálf stýrum því hvernig okkur líður“

Screen Shot 2013-02-19 at 12.42.36

Draumey Aradóttir, þýðandi, er sérlegur aðdáandi sjálfsþroskabóka en það kýs hún sjálf að kalla sjálfshjálparbækur. Hún hefur lesið dágott safn af slíkum bókum en sú síðasta sem sló í gegn hjá henni, AÐ VELJA GLEÐI, var svo góð að hún ákvað að þýða hana yfir á íslensku til að leyfa okkur hinum að njóta hennar líka….

FRÉTT: Furðustrandir eftir Arnald -Mest selda glæpasagan í Frakklandi!

arnaldur

Glæpasagan Furðustrandir, eftir Arnald Indriðason, kom út í Frakklandi þann sjöunda febrúar síðastliðinn, í þýðingu Eric Boury. Bókin stökk beint í fyrsta sæti glæpasagnalistans og í þriðja sæti heildarlistans. Furðustrandir er því mest keypta glæpasagan í Frakklandi og þriðja mest keypta bókin þar í landi! „Höfundar á borð við Stieg Larsson, Henning Mankell og Jussi…