


Frönsk ungmenni geta farið að hlakka til því útgáfustjóri hjá forlaginu Bayard Jeunesse hefur fest kaup á útgáfuréttinum á hinni frumlegu og djúpvitru bók Bryndísar Björgvinsdóttur um fluguna sem stöðvaði stríðið. Bayard er annað stærsta barnabókaforlag í Frakklandi og selur árlega um sex milljónir eintaka bóka sinna. Þau hyggjast gefa bókina út senmma árs 2015…

Nú þegar umræða um væntanlega fegurðarsamkeppni er á margra vörum langar mig eitt andartak til að tengja umræðuna um útlitsdýrkun að því hvaða slíkar áherslur geta haft á ungar og óharðnaðar sálir barna og unglinga. Þetta er ekki neitt nýtt en er eitthvað vit í dag, árið 2013, að ýta undir svo óskynsamlega og persónuleikabrenglandi…

The Internship er skemmtileg gamanmynd sem verið er að sýna í Laugarásbíó en Owen Wilson og Vince Vaughn fara með aðalhlutverkin. Þessir leikarar bera á sér vissan gæðastimpil í gamanleik. Það er ennfremur Vince Vaughn sem skrifar handritið að myndinni. Fólk á sem sagt nokkurnveginn að vita að hverju það gengur, ef það á annað…

Árið 2003, eða fyrir 10 árum síðan, tók ég þátt í fegurðarsamkeppni. Að hafa tekið þátt í þeirri „keppni“ er eitthvað sem ég mun alltaf sjá eftir. Það sem er fyndnast við þetta allt saman er að ég var sko staðráðin í því að taka þátt í keppninni. Ekki veit ég af hverju ég var…

Vitnið er nýjasta bók Noru Roberts. Bók sem fjallar um ást, örlög og hvernig saklaus einstaklingur flækist inn í undirheimana. Elísabet Fitch er aðeins 16 ára þegar hún gerir uppreisn á móti móður sinni en móðir hennar hafði alið hana upp eins og dúkku. Hvert fótmál hennar var skipulagt, hún átti að vera fullkomin í…

„PITS ARE FOR PIGS stóð skrifað þvert yfir enni hins látna. Guðgeir pírði augun til að greina betur klunnalega stafina. Þeir virtust skrifaðir með svörtu tússi. Ekki hafði verið nægilegt rými fyrir essið í PIGS svo að endalykkjan hafði lent í hári mannsins og líktist helst dökkri klessu.“ Þetta eru upphafsorð bókarinnar Hinir réttlátu eftir…

Undanfarið hef ég verið að hlusta á lagið „Blurred Lines“ með Robin Thicke og Pharrell Williams og ég held svei mér þá að þetta sé eitt kynþokkafyllsta lag sem ég hef heyrt! Þegar þeir félagar tóku upp fyrsta myndbandið (já fyrsta) við þetta lag þá fór Robin til konunnar sinnar og spurði hana hvort það…

Ekki fá áfall ef þér sýnist sem vinkona þín eða vinur séu skyndilega komin með gríðarlegt spjátrungsskegg á prófílmyndinni sinni á Facebook. Kannski er þetta bara kisi eða hvutti? Ótrúlega skemmtilegt trend fór af stað á netinu fyrir um tveimur árum þegar Tumblr notandinn Catasters setti inn mynd af sjálfum sér með kisann sinn fyrir…

Sækið ljósuna eftir Jennifer Worth er fyrsta vinsæla skáldsagan sem skrifuð hefur verið um ljósmæður og störf þeirra en ótal margar bækur hafa verið skrifaðar um lækna og hjúkrunastörf. Söguna segir Jennifer Worth sem starfaði sem ljósmóðir í austur hluta London eða fátækrahverfinu á sjötta áratug síðustu aldar en Sækið ljósuna er fyrsta bókin af þremur…

Í sumar ætla ég að njóta þess í botn að vera til ásamt fjölskyldunni minni og vinum. Ég hef mikið verið að velta því fyrir mér hvað við getum gert skemmtilegt í sumar ásamt börnunum okkar án þess að þurfa að fara langt að heiman. Datt mér þá í hug að tína til nokkrar skemmtilega…