Færslur í flokknum: Súpur & salöt

UPPSKRIFT: Gróf tómatapizza með mozzarella/kotasælu

Gróf tómatapizza með mozzarella/kotasælu, ofnbökuðum kirsuberjatómötum og grænmetissalati.

pizza

Þessi er bæði góð, girnileg og heilsusamleg og það verður ljúft að njóta hennar...Til dæmis með góðu rauðvíni og í fallegum félagsskap. Þetta verður pizza sumarsins. Hér er uppskriftin... stútfull af vítamínum og bætiefnum.

Botn

3½ dl heilhveiti ½ tsk sjávarsalt • vínsteinslyftiduft/lyftiduft á hnífsoddi 1½ dl vatn 4 msk tómatamauk 1. Blandið fyrstu þremur hráefnunum saman í skál. 2. Setjið vatn og tómatamauk saman við. Hærið. Bætið meira heilhveiti saman við ef þurfa þykir. 3. Hnoðið létt og skiptið deiginu í 6 parta. Fletjið hvern part út í þunnan hring sem er u.þ.b. 22 cm í þvermál. 4. þurrsteikið á pönnu, báðum megin. Ofnbakaðir kirsuberjatómatar 300 g kirsuberjatómatar, skornir í tvennt ½ tsk þurrkað oreganó • smá sjávarsalt • smá svartur pipar ¼ tsk hrásykur 1 msk ólívuolía 1. Stillið ofninn á 220°. 2. Setjið tómatana á bökunarplötu klædda bökunarpappír. Sáldrið kryddi og sykri yfir. Hellið olíunni jafnt yfir. Bakið í 20-25 mínútur.

Grænmetissalat

100 g klettasalat 1 stk lárpera, skorin í þunnar sneiðar 300 g ofnbakaðir kirsuberjatómatar 3 msk ristaðar furuhnetur 2 stk mozzarellakúlur, rifnar niður eða 250 g kotasæla 1 stk búnt fersk basilíka, u.þ.b. 40 g 1½ tsk rauðvínsedik 6 msk ólívuolía • sjávarsalt og svartur pipar eftir smekk Maukið basilíkuna og rauðvínsedikið í matvinnsluvél eða með töfrasprota. Hellið olíunni saman við á meðan vélin er að vinna. Smakkið til með salti og pipar. Leggið salatið á pizzubotnana. Raðið tómötum, osti og lárperu yfir. Dreifið salatsósunni jafnt yfir pizzurnar. Sáldrið loks furuhnetunum yfir.

Njótið í góðum selskap meðan hlustað er á góða tónlist... helst með ítölsku ívafi.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir og fleiri  uppskriftir HÉR

UPPSKRIFT: Gróf tómatapizza með mozzarella/kotasælu

pizza

Gróf tómatapizza með mozzarella/kotasælu, ofnbökuðum kirsuberjatómötum og grænmetissalati. Þessi er bæði góð, girnileg og heilsusamleg og það verður ljúft að njóta hennar…Til dæmis með góðu rauðvíni og í fallegum félagsskap. Þetta verður pizza sumarsins. Hér er uppskriftin… stútfull af vítamínum og bætiefnum. Botn 3½ dl heilhveiti ½ tsk sjávarsalt • vínsteinslyftiduft/lyftiduft á hnífsoddi 1½ dl…

UPPSKRIFTIR: Ferskt og gott salat með kjúkling og lárperu

salat1

Það er fátt eins ljúffengt og gott salat! Ég hreinlega elska bragðgóð salöt og geri mikið af því að prófa mig áfram í dressingum og skella saman ólíkum hráefnum í salöt. Þetta salat er alltaf jafn gott. Það er einfalt, ótrúlega bragðgott og saðsamt. Það sem þú þarft til að búa til kjúklinga, avocato ostasalat…

SALAT: Ávaxtasalat með kakó-nibbum, síróps og lucuma dressingu

www.pjatt.is

  Unaðslega gott ávaxtasalat, súper hollt, bragðið er algjörlega himneskt. Fullkomið yfir góðri „ræmu“ eða í þínum besta félagsskap.  Hráefni  1 bolli jarðarber, skorin í bita 2 Kiwi, skorið í sneiðar 1 bolli ananas, skorinn í bita 1 msk kakó-nibbur 2 matskeiðar hlynsíróp + 1 tsk af lucuma-duft, blandað saman Blandið ávöxtunum saman í skál….

UPPSKRIFT: Mexíkósk kjúklingasúpa – hrein dásemd á köldu haustkvöldi

Sjúklega góð súpa!!!

Þessi súpa er mjög vinsæl á mínu heimili. Hún er bragðsterk, matarmikil og bara sjúklega góð. Börnunum finnst hún líka góð því það er snakk í henni eins og þau segja. Það sem þú þarft í súpuna er: 2 stk Kjúklingabringur (smátt skornar) Heinz chili sósa 1 flaska Maukaðir tómatar frá Sollu 1/2 – 3/4…

UPPSKRIFT: Lárperu og tómatsalat – stútfullt af vítamínum!

www.pjatt.is

Þetta salat er svo unaðslega gott. Hrein hollusta með fullt fullt af vítamínum - gott eitt og sér einnig  með mat! INNIHALD 2 vel þroskuð lárpera 2 stórir þroskaðir tómatar 2 msk ferskur sítrónusafi 3 msk. hakkað kóriander salt og pipar eftir smekk AÐFERÐ Skerið lárperu og tómat í frekar grófa bita.  Setjið sítrónu, kóríander út á…

UPPSKRIFT: Frábær ítölsk matarmikil grænmetissúpa, tilbúin í allt!!

www.pjatt.is

Þessi súpa getur allt! Hún er frábær hversdags því hún er einföld og alltaf góð – svo er hægt að spariklæða hana og þá er hún frábær í veislur líka! Svona er hún einföld 2 laukar (æði að nota hvítan lauk) 3-4 hvítlauksgeirar Ólífuolía 1/2 blómkálshöfuð 1 stór kartafla 3-4 gulrætur 1 krukka maukaðir tómatar (nota…

UPPSKRIFT: Léttari sósa á Sesar salatið -27 hitaeiningar í skammti

caesar-dressing-lrg

Tímaritið Oxygen birtir í þessum mánuði fullt af uppskriftum að sósum og salatdressingum sem innihalda miklu færri hitaeiningar en fyrirmyndirnar en bragðast engu síður. Hér er uppskrift að Sesarsalat dressingu sem inniheldur umtalsvert færri hitaeiningar en hin afar hitaeiningaríka sósa sem við erum vanar. Þessi endist í heilan mánuð ef þú setur hana í krukku…

UPPSKRIFT: Unaðslegt salat með geitaosti

Namm namm!

Þetta salat er góður forréttur fyrir alla fjölskylduna en jafnframt fullkomið vinkonusalat þegar loksins gefst smá tími með góðri vinkonu til þess að spjalla saman í ró og næði og dreypa á svolitlu hvítvíni með, það drepur engan. Þú þarft 400 gr brakandi ferskt salat (blaðsalat) 1 grænt epli 1 pera, vel þroskuð 120 gr geitaostur, verður að…

MATUR: Heimagerð pizzusósa – Holl og góð

Pizzasosa 2

Það hefur gefið sér vel á heimilinu að gera sína eigin pizzusósu en ótrúlegt en satt þá er það mjög auðvelt. Með því að gera sína eigin sósu veistu nákvæmlega hvað er í henni og þú getur varla fengið ferskari sósu. Það er einnig auðvelt að frysta sósuna ef þú gerir of mikið og nota…

MATUR: Salat með rucola, vínberjum og tómötum

salat

Oft festist maður í því að gera alltaf sama salatið en ég prufaði þetta núna um daginn og það er himneskt… svo gott! Það sem fer í salatið er svo sáraeinfalt: Nokkrir góðir tómatar Vínber, skorin í tvennt Ruccola Salatdressing: 1. tsk. Hunang 1/2 stk lime (safinn) 2. msk. Ólífuolía 1.stk. hvítlauksrif (pressað) Smá klípa…