Færslur í flokknum: Bakstur & brauð

UPPSKRIFT: Undursamlega góð Súkkulaðikaka með saltaðri karamellu!!

Súkkulaðikaka með saltr i karamellu1 9994_2_ copy Nú má franska súkkulaðikakan fara að vara sig. Þessi þykir ekki síðri, mjúk og fín og góð tilbreyting frá þeirri frönsku.

Djúpt súkkulaðibragðið og söltuð karamellan fara einstaklega vel saman en söltuð karamella er í tísku um þessar mundir í ýmsa eftirrétti, kökur og fleira góðgæti. Í fínustu uppskriftunum er notað ,,fleur de sel’’, sem er afbrigði af salti sem gjarnan er notað í eftirrétti en gott, gróft sjávarsalt hentar vel í karamelluna góðu. Prófið ykkur áfram með saltmagnið. Það er ekkert varið í að hafa hana of salta og erfitt reynist að minnka saltbragðið sé það orðið yfirgnæfandi.
  • 2 dl kakóduft
  • 75 g smjör
  • 1 ½ dl grænmetisolía, t.d. sólblóma- eða repjuolía
  • 2 dl vatn
  • 100 g suðusúkkulaði, grófsaxað
  • 200 g sykur
  • 1 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 3 dl hveiti
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 1 ½ dl sýrður rjómi, 18%

AÐFERÐ

Bræðið smjörið við vægan hita í potti og blandið olíunni og kakóduftinu saman við. Takið af hitanum. Bætið þá súkkulaðinu og sykrinum út í og hrærið þar til súkkulaðið er alveg bráðið og blandan er orðin slétt. Látið blönduna kólna. Hellið síðan í hrærivélarskál og hrærið egginu, vatninu og vanilludropunum vel saman við og sigtið hveitið og lyftiduftið út í. Hrærið loks sýrða rjómanum saman við. Smyrjið smelluform og klæðið botninn með bökunarpappír. Setjið deigið í formið og bakið við 150 gráður í 45 mínútur. Látið kökuna svo kólna vel áður en hún er tekin úr forminu. Berið karamellusósuna fram með kökunni t.d. í rjómakönnu, þannig að hver og einn skammti sér yfir sína kökusneið. Má líka dreypa karamellusósunni yfir kökuna áður en borin fram.

Söltuð karamellusósa

  • 2 dl sykur
  • 3 msk. vatn
  • 1 dl rjómi
  • 2 msk. smjör
  • ½ - 1 tsk. gróft sjávarsalt (t.d. Maldon)
Hitið sykur og vatn saman í potti við vægan hita þar til sykurinn hefur bráðnað. Hækkið þá hitann og látið malla í nokkra mínútur án þess að hræra í. Fylgist þó vel með að brenni ekki. Sírópið er tilbúið þegar það hefur þykknað og er orðið ljósbrúnt að lit. Hitið rjómann, látið sírópið renna í mjórri bunu saman við og hrærið vel í á meðan. Bætið smjörinu saman við og látið það bráðna í blöndunni. Loks er saltinu bætt út í að smekk.

Njótið!... og ekki gleyma að kíkja á nýju Facebook síðuna mína fyrir Partírétti.

UPPSKRIFT: Undursamlega góð Súkkulaðikaka með saltaðri karamellu!!

Screen Shot 2013-06-14 at 11.01.32

Nú má franska súkkulaðikakan fara að vara sig. Þessi þykir ekki síðri, mjúk og fín og góð tilbreyting frá þeirri frönsku. Djúpt súkkulaðibragðið og söltuð karamellan fara einstaklega vel saman en söltuð karamella er í tísku um þessar mundir í ýmsa eftirrétti, kökur og fleira góðgæti. Í fínustu uppskriftunum er notað ,,fleur de sel’’, sem…

UPPSKRIFT: Brownies fyrir Bowie aðdáendur!

bowie

Þessi uppskrift er fyrir alla sem elska David Bowie. Dásamlegar brúnkur sem slá í gegn í hvaða partýi sem er, þó enn betur ef Bowie hljómar undir. INNIHALD Í BROWNIES 165 gr ósaltað smjör og aðeins til að smyrja formið 260 gr Green & Blacks 70% dökkt súkkulaði (2 x 100g til að bræða og…

UPPSKRIFT: Sykurlausar vöfflur – Dásamlega góðar!

Coconut-Flour-Waffles-Paleo-6-1600x1200

Þessar vöfflur geri ég alltaf heima hjá mér og langbestu vöfflurnar. Ég geri þær mjög oft á sumrin og þá úti í góða veðrinu. Sykurlausar vöfflur 5 dl létt ab-mjólk 5 dl hveiti (eða 2 dl spelt og 3 hveiti) 2 egg 1/2 tsk salt 2 tsk lyftiduft 1 tsk matarsódi 6 msk góð olía…

UPPSKRITFT: Hollt og gómsætt eplapæ sem er auðvelt að útbúa

Holl eplapæ

Mér finnst ofsalega gott að fá heita eplapæ með ís á sunnudags-eftirmiðdögum og vegna hollari lífshátta hef ég aðlagað uppskriftina að því og baka nú sykurlausa, mjólkurlausa eplapæ. Þessi er þó enginn eftirbátur „óhollari útgáfunnar“ enda kemur sætan frá eplunum sjálfum. Undirbúningur tekur 10 mín og bakstur 20-25 mínútur: Fylling 3-4 meðalstór epli 2 msk…

UPPSKRIFT: Lokkandi hindberja múffur – Gleðisprengjur fyrir bragðlaukana!

www.pjatt.is

Það er eitthvað við súkkulaði sem hefur áhrif á gleðina. Þessar unaðslegu múffur eiga skilið að komast á verðlaunapall, þær veita manni ómælda gleði. Ef þig langar að toppa fullkominn málsverð, þá mæli ég með þessum gullmolum! HRÁEFNI Fyrir 2 70 gr súkkulaði (70%) 20 gr hrásykur 50 gr smjör 1 egg 1/4 tsk salt…

UPPSKRIFTIR: Heit fljótandi súkkulaðibomba í eftirrétt – Algjör sæla!

sukkuladi

Finnst fátt betra en góður súkkulaði eftirréttur og þessi slær öllu við! Þvílík bomba! Algjört lostæti með ís og jarðaberjum…mmm INNIHALD Fyrir 6 140 gr smjör 140 gr 70% súkkulaði 2 egg 3 eggjarauður 140 gr flórsykur 2 msk hveiti AÐFERÐ Smyrjið sex lítil suffleform með smjöri. Bræðið smjör og súkkulaði saman við vægan hita….

UPPSKRIFT: Himneskir pítsasnúðar-sem kæta unga sem aldna

www.pjatt.is

Þessir gaurar slá allstaðar í gegn og eru alltaf vinsælir hvar sem þeir troða upp. Frábært að eiga þá í frysti. Æðislegir í veisluna, næla sér í þegar þú ert á hlaupum eða í hvaða gleði sem er. HRÁEFNI 6 dl spelt 2 tsk. vísteinslyftiduft 1/2 tsk sjávarsalt 2 msk. olífuolía 2 1/2 dl vatn…

UPPSKRIFT: Ávaxtapönnukökur úr banana, eggi og bláberjum

www.pjatt.is

Ég verð að viðurkenna að þessi týpa af morgunmat er ansi nálægt því að vera í stífri samkeppni við hafragrautinn góða um titilinn „Besti morgunmatur í heimi!“. Ég elska að fá mér þessa dásemd, sérstaklega á sunnudagsmorgnum og toppa með einum góðum cappuccino á eftir, og svo gerist þetta ekki einfaldara. Hráefni Bláber 1 stór…

UPPSKRIFT: Súkkulaðibollakökur með hindberjum og súkkulaðiskyrkremi!

Screen Shot 2013-04-17 at 10.08.58

Súkkulaðibollakökur með hindberjum og súkkulaðiskyrkremi eru dúnmjúkar og dýrðlegar undir tönn. Dásamlegar með morgunkaffinu (að hætti Ítala sem borða kökur á morgnanna) eða með síðdegiskaffinu. Þessar eru úr heilhveiti og innihalda aðeins 1/2 dl hrásykur og vínsteinslyftiduft svo þær eru svona í hollari kantinum og mega þessvegna fara með sem nesti í skólatöskuna. Uppskriftin er…

UPPSKRIFT: Sykurlaust Snickers – Fullkomið fyrir LKL lífstílinn!

snickerssykurlaust

Það eru reyndar ekki ný sannindi að það margborgar sig að sleppa sykri og sterkju úr mataræðinu vilji maður grenna sig. Hér er frábær uppskrift að ótrúlega góðu Snickers sem inniheldur lítinn sem engan sykur. Hægt að hafa það alveg sykurlaust ef þú kaupir sykurlaust dökkt súkkulaði til að bræða. INNIHALD (ca 15 stk) 200…