Færslur í flokknum: Fiskur og skelfiskur

UPPSKRIFT: Grillaður lax með rjóma-mangó sósu

Það er fátt betra en að skella góðum laxi á grillið og njóta með góðu hvítvíni svona yfir sumartímann.

loxFlestan feitan fisk er einfalt að grilla og staðinn fyrir laxinn er hægt að nota væna bleikju eða lúðu. Hér kemur uppskrift af Gott í matinn.is en hér erum við með mjög girnilega mangó sósu með laxinum. Einföld og verulega góð uppskrift sem við hvetjum þig til að prófa. Það er nefninlega hægt að grilla svo margt!

Innihald

• salt og pipar • olía • handfylli af salati 800 g lax 1 mangó, afhýtt og grófrifið 1 grilluð rauð paprika, skorin í strimla Rjóma mangó-sósa • ögn af karrídufti 1 g sýrður rjómi (1 dós), 10%, Gott í matinn frá MS 1 mangó, afhýtt og skorið í litla bita ½ límóna, safi og fínrifinn börkur 3 límóna, safi og fínrifinn börkur

Aðferð

Hitið grillið vel. Smyrjið olíu á grillgrindurnar og á fiskinn. Gott er að nota fiskiklemmu undir flakið. Grillið laxinn í 3–4 mínútur, fyrst á roðlausu hliðinni og síðan 3–4 mínútur á roðhliðinni. Saltið og piprið og berið strax fram heitt með rjóma-mangó-sósunni, rifnu mangói, grillaðri papriku og handfylli af salatblöðum.

Búið sósuna til með því að mauka allt saman með rafmagnssprota eða í matvinnsluvél. Aðalréttur · undirbúningur um 10 mínútur · matreiðsla um 10 mínútur

Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir

UPPSKRIFT: Grillaður lax með rjóma-mangó sósu

lox

Það er fátt betra en að skella góðum laxi á grillið og njóta með góðu hvítvíni svona yfir sumartímann. Flestan feitan fisk er einfalt að grilla og staðinn fyrir laxinn er hægt að nota væna bleikju eða lúðu. Hér kemur uppskrift af Gott í matinn.is en hér erum við með mjög girnilega mangó sósu með…

UPPSKRIFT: Laxahamborgarar með wasabi-eplasósu

Laxaborgari

Hvernig væri að prófa laxaborgara fljótlega? Þeir eru umtalsvert hollari en þessir hefðbundnu enda lax og lárpera spriklandi í hollum næringarefnum sem kroppurinn þinn á eftir að elska. Innihald 500 g laxaflak, bein- og roðlaust, skorið í bita 1 stk egg ½ dl graslaukur, finsaxaður 2 msk repjuolía 4 stk gróf hamborgarabrauð eða 8 sneiðar…

UPPSKRIFT: Kókoshjúpaðar laxabollur með ofnbakaðri sætkartöflumús

laxabollur

Lax er með því besta sem við getum borðað enda ákaflega ríkur af Omega3 og D vítamínum svo eitthvað sé nefnt. Þessi uppskrift er ekta fyrir sumarið, bæði girnileg og holl í senn. Hver elskar t.d. ekki sætar kartöflur? Mmmm… það verður gaman að prófa þessa um helgina! Laxabollur innihald 500 g laxaflak, bein- og…

UPPSKRIFT: Ljúffengt túnfiskssalat og hveitikímklattar

tunsalat

Hefðbundin íslensk matargerð hefur ekki alltaf verið sú allra besta fyrir heilsuna en það er alltaf hægt að taka snúning á hefðirnar og breyta svolítið þannig að maturinn verði hollari. Hér er túnfisksalatið gert þannig að við notum gríska jógúrt í staðinn fyrir majones. Túnfisksalatið með er svakalega gott og einfalt: 1 harðsoðið egg 1…

UPPSKRIFT: Steinbítur með lime, engifer og dukkah

dukka_steinbitur

Hvað er betra fyrir líðanina og heilsuna en fagur fiskur úr sjó, fullur af próteini og vítamínum?  Í dag er þriðjudagur og ferskur fiskur kominn í borðin hjá fisksölum landsins… því er ljómandi góð hugmynd að kvöldmatnum. Uppskriftin er fyrir fjóra, fengin hjá stelpunum í Yndisauka. Einkar girnileg uppskrift og við mælum þá sérstaklega með…

UPPSKRIFT: Meaux-sinneps lax – engin eldamennska!

laxmustard

Þessi skemmtlega uppskrift er tilvalin fyrir unnendur sushi og alla sem elska lax… hér er enginn eldamennska en hinsvegar svolítill undirbúningur og þú þarft góðan tíma. Ekkert stress hér. Uppskriftin rekur ættir sínar til Frakklands en Meaux sinnepið fæst í Heilsuhúsinu og þar færðu einnig sinnepskornin… 1½ kg laxaflak (flök) 2 msk Maldon hafsalt hvítur…

UPPSKRIFT: Hollur, góður og girnilegur sumarlax!

laxinn

Ferskur lax er eitt uppáhaldshráefnið mitt og finnst mér hann langbestur mjög létt eldaður og helst hrár. Lax er frábær í alls kyns salöt, ofnrétti, í sushi auðvitað og svo mætti lengi telja, nánast í hvað sem er. Oftar en ekki er einfaldleikinn bestur og fer vel með þessu dásamlega hráefni. Hér er uppskrift að…

SMJATTRÓFAN: Tapashúsið

Tapashúsið - Skötuselur

Staður: Tapashúsið Verð: Í hærri kantinum Þjónusta: Sæmileg Umhverfi: Fallegt, huggulegt og snyrtilegt. Tapashúsið er staðsett í miðbæ Reykjavíkur í fallegu húsi þar sem útsýni yfir hafið blasir við manni ef maður situr á neðri hæð hússins. Matseðillinn er vel uppsettur og hægt er að kaupa meðal annars smakkmatseðla sem njóta mikilla vinsælda í Reykjavík…

UPPSKRIFT: Hollt og gott rækjusalat með grískri jógúrt

STUDIE_580318a

Það eru margir sólgnir í rækjusalat enda ferskar rækjur sérlega ljúffengt sjávarfang. Vandinn við rækjusalatið er samt hitaeiningafjöldinn. Bæði innihalda rækjurnar sjálfar talsvert magn hitaeininga og svo er majónesið algjör kaloríusprengja. Hér er uppskrift að góðu og fersku rækjusalati sem er dásamlegt ofan á nýbakað speltbrauð eða hrökkbrauð. Uppskriftin er fengin að láni úr fréttbréfi…

UPPSKRIFT: Ofnbakaður lax með hvítlauk og rósmarín

Screen Shot 2012-04-19 at 13.30.50

Lax er með því hollasta sem við borðum. Hann inniheldur ríkulegt magn af Omega3 fitusýrum og er sérlega próteinríkur. Sem betur fer höfum við íslendingar alltaf góðan og greiðan aðgang að ferskum laxi og því um að gera að njóta hans sem oftast. Hér er skemmtilega sumarleg uppskrift að góðum laxarétti. Áður en þú tekur…