

Í hæðum Beverly Hills í Kaliforniu situr þetta fallega hús. Eigandinn er mikill sportisti og vildi hafa stór málverk af íþróttaiðkun á veggjunum. Eins vildi hann fullkominn keilusal í húsinu. Keilusalurinn er í kjallaranum á húsinu með gluggum sem vísa út í sundlaugina. Þannig að það sést í vatnið og þá sem eru í vatninu…

Ég fæ alveg ótrúlega oft fyrirspurnir varðandi barnaherbergi, hvernig sé hægt að breyta þeim á skemmtilegan hátt án þess að buddan tæmist. Hagkvæmar og skemmtilegar hugmyndir sem auðvelt er að breyta aftur. Því börnin stækka fjótt og vilja breytingar á nokkra ára fresti, sem er auðvitað eðlilegt miðað við þroska barnanna. Hér hef ég tekið…

Það er ekki amalegt að vera hundur nú til dags Fyrirtækið Best friends home sérhæfir sig í hundakofum og það engum smá „kofum“! Hægt er að fá hundahús sem eru nútímaleg í útliti, hvít með hreinum fallegum línum. Hús sem minnir á sænskt sveitasetur, hvíta hús forseta Bandaríkjanna eða lítið krúttlegt prinsessuhús í anda ævintýranna. Það…

Fallegar ljósakrónur eru mikil prýði á heimili en hér gefur að líta eina sem ber algjörlega af í hönnun. Það eru dönsku listamennirnir Hilden & Diaz eða Thyra Hilden og Pio Diaz sem eiga heiðurinn að þessu flotta ljósi sem þau kalla, “Forms of Nature”. Krónan er samsett úr hvítum ‘trjágreinum’ sem kasta skuggum á…

Það þarf ekki alltaf að kaupa allt nýtt þegar búa til á svæði fyrir heimaskrifstofu Hægt er að nýta gömul skrifborð, gamla ramma, gamlar hillur eða jafnvel fara enn lengra og næla sér í gamlar hurðar eða glugga og búa til skemmtilegar minnistöflur úr þeim. Þessi hurð á myndinni fyrir ofan var bæsuð og lökkuð….

Old Mac Daddy er lúxus hjólhýsahótel staðsett í Elgin Valley, Grabouw, Suður Afríku en hótelið var byggt sérstaklega til að bjóða uppá öðruvísi og skemmtilegri gistingu. Ekkert er tekið of alvarlega heldur einblínt á skemmtilegheitin, þægindin, húmorinn og frábæra staðsetningu til að skapa ógleymanlegar minningar. Snilldarhugmynd! Hjólhýsin eru innréttuð hvert á sinn hátt og geta…

Margir eru í vandræðum með plássið undir stiganum í tveggja hæða húsum… …en það er hægt að nýta það á góðan hátt með því að skella hillum undir hann, nú eða loka rýminu og nýta það sem skáp. Oft er fólk í vandræðum hvar það á að geyma bækurnar sínar, geisladiskana, jólaskrautið nú eða vetrarföt…

Svíar eru snillingar þegar kemur að garðrækt Þeir kunna svo sannarlega að njóta sumarsins og búa sér til sælureiti í garðinum en þetta ofur fallega gróðurhús er útbúið sem sólstofa þar sem eigendurnir geta notið þess að rækta blómin og jurtir og slakað vel á í þægilegum sófa þess á milli. Stórt og mikið borð…

Tabisso er frekar nýlegt franskt hönnunarfyrirtæki sem hannar stóla og lampa en það sem er einstakt við hönnun þeirra er að stólarnir eru í formi stafa. Hægt er að raða saman stólum og mynda þannig eitthvað skemmtilegt orð. Tabisso hafa vakið gífurlega athygli á húsgagnasýningum erlendis og fengið mikið lof fyrir frábæra hönnun. Það verður…

Það er alltaf gaman að verða unglingur og fá að breyta herbergi sínu úr barnaherbergi yfir í eitthvað örlítið fullorðinslegra. Til að skapa flott, rúmgott og skipulagt rými fyrir unglinginn er best að byrja á því að skoða áhugamálin. Á hverju hefur hann áhuga, er það tónlist, íþróttir, bækur, tölvur eða eitthvað allt annað. Er…