Færslur í flokknum: Líkamsrækt

HEILSA: Ert þú sérfræðingur í að gera óeðlilegar kröfur til líkama þíns?

Ert þú í átaki fyrir sumarið? Ætlaru að vera bomba í bikiníi á Benedorm í sumar? Þú ert þá ekki ein. Við erum allar komnar á tuttuguasta djúskúrinn, búnar að klippa út kolvetnið og hamast svo í spinningtímum að heimilis hamsturinn myndi skammast sín.

Ekki láta mig draga úr þér, hóflegur metnaður er af hinu góða. Hvert ertu samt að stefna með þetta? Ferðu langt með spínat í poka? Kemur ekki haust eftir þetta sumar? Ætlaru þá bara að klæða þig í leggins og síða peysu og troða speltinu lengst inn í skáp, eða þangað til að þú skráir þig á næsta námskeið í  Í kjólinn fyrir jólin? Ég hef verið þarna, trúið mér. Með gulrætur í poka hékk ég á skíðatækinu, klippti út myndir af Victoria's Secret englum og bað jesúbarnið um að hjálpa mér að komast í stærð 26 í Diesel - gallabuxum. Stundum komst ég nálægt markmiðinu en í raun ekki. Sko, málin standa þannig að ég er 175 cm á hæð, og ég er með stór brjóst-stóran rass-stóran persónuleika. Maður megrar það einfaldlega ekki af sér, ekki nema með því að svindla á sjálfum sér og lífsins gæðum. Á endanum, samferðarfólki mínu til mikillar gleði, horfðist ég í augu við það að ég mun aldrei fá lánaðar buxur hjá Kate Moss. Með hollu matarræði og skörungsskap í lyftingarsalnum má samt gera mikið af góðum hlutum.

Göfugri markmið en að koma sér í niðurþröngar gallabuxur

Það er hægt að vinna að mótaðri magavöðvum og stinnari rass og mótuðum öxlum en það er ekkert til sem heitir að breyta algjörlega um líkamsvöxt nema: A) fitness undirbúnings lífstíll (ég þekki þetta góða fólk, þau borða ekki eintómar eggjahvítur nema rétt fyrir mót og æfingarprógrammið er fyrir fólk í kepnnishug) eða B) lýtaaðgerðir Fyrir mér eru þessir tveir möguleikar ekki í boði. Ég vil líta vel út, satt er það en það eru bara 24 tímar í deginum og ég eyði max. 90 mínútum af þeim í ræktinni. Það eru nefnilega til göfugri markmið en að koma sér í niðurþröngar gallabuxur. mynd35Ef ég endurtek mig þá eru hófleg markmið af hinu góða. Okkur líður vel andlega og líkamlega þegar við náum þeim. Ef markmiðin hefta okkur hinsvegar  í því að lifa lífinu þá eru þetta ekki markmið. Þá er þetta bara fullkomnunarárátta og hún gefur okkur aldrei neitt nema minnimáttarkennd og lélegt sjálfstraust. Trúið mér, ég hef svo oft grenjað með vigtina í höndunum að ég ætti að vera titluð ,,Sérfræðingur í að gera óeðlilegar kröfur til líkamsvaxtar", í símaskránni.

Settu þér samt eitthvað markmið fyrir sumarið. Það má alveg vera að ætla grennast fyrir sundlaugarbakkann. Það má líka vera eitthvað alveg fáránlegt eins og læra panta pizzu á  tjékknesku. Prufaðu það! Það er ótrúlega gefandi. Hafðu það samt hugfast að þú græðir á markmiðinu til lengri tíma, ekki bara þangað til að komið er að sólarlandaferðinni.

Nú er ég á leið út að hlaupa. Ekki til að grennast. Ekki til að geta borið mig saman við aðrar konur. Ekki til að heyra fólk hrósa mér fyrir að líta vel út. Nei, ég ætla hlaupa í Reykjavíkurhlaupinu í sumar. Það býr ekkert annað að baki, mig langar einfaldlega að hlaupa í því til að sýna sjálfri mér að ég get það. Og það lætur mér líða vel. Betur en að passa í óþægilegar buxur sem ég nota aldrei hvort eð er.

Ég er  örugglega meiri skvísa rennandi sveitt í rauða Íslandsbankabolnum, andstutt og  búin að hella bláum Gatorade yfir hárið á mér. Það er ég viss um!

HEILSA: Ert þú sérfræðingur í að gera óeðlilegar kröfur til líkama þíns?

mynd35

Ert þú í átaki fyrir sumarið? Ætlaru að vera bomba í bikiníi á Benedorm í sumar? Þú ert þá ekki ein. Við erum allar komnar á tuttuguasta djúskúrinn, búnar að klippa út kolvetnið og hamast svo í spinningtímum að heimilis hamsturinn myndi skammast sín. Ekki láta mig draga úr þér, hóflegur metnaður er af hinu…

HEILSA: 100 ástæður þess að þú ættir ekki að sleppa æfingu

Screen Shot 2013-04-21 at 21.03.56

Varstu nokkuð að hugsa um það að sleppa æfingu í dag eða á morgun? Ég held að þú leyfir þér ekki lengur að hugsa um það ef þú lest þessar 100 ástæður fyrir því að æfa. Við þurfum hvatningu og þetta gefur okkur heldur betur góða ástæðu fyrir því að æfingin er nauðsynleg! Þennan lista þarftu…

HEILSA: Er hægt að léttast án þess að vera svöng?

Screen Shot 2013-03-14 at 13.50.17

Við viljum öll vera södd og sátt yfir daginn og hafa næga orku. Oft er það nú hinsvegar þannig að þegar við breytum um stíl eða hugum betur að mataræðinu þá förum við að ofhugsa um mat og þar af leiðandi erum við alltaf svöng. Við verðum að passa okkur að vera ekki með hugann…

HEILSA: Æfðu heima, það er ókeypis! – 5 leiðir að góðum árangri

url

Lengi hef ég verið eldheit talskona þess að fólk stundi heimaleikfimi. Hún er ódýr, sparar þér tíma og gerir þér um leið ljóst að það er enginn sem ræður yfir líkama þínum og holdafari önnur en þú sjálf. Með þessu er ég að meina að þó þú borgir einkaþjálfara 80 þúsund á mánuði og innbyrðir…

HEILSA: 2 vikna matseðill, 3 uppskriftir og fleiri góð ráð til að léttast

Screen Shot 2013-01-16 at 15.09.33

Enn dvelur hugur okkar við áramótaheitin og heilsuátakið og margar höfum við náð ágætis árangri það sem af er janúar. En betur má ef duga skal… það þarf að halda þessu við. Guðbjörg Finnsdóttir, íþróttakennari hjá G-Fit heilsurækt í Garðabæ leyfði okkur að leita í sinn góða viskubrunn og deilir hér með lesendum Pjattsins heilræðum…

HEILSA: Bætt heilsa, breyttur lífsstíll og meiri skynsemi árið 2013

www.pjatt.is

Nú er nýtt ár gengið í garð. Árið 2013 hljómar ansi vel… Margir setja sér áramótaheit að bættri heilsu og nýjum lífsstíl -sem er frábært. Ég „kíkti“ einn seinnipartinn á dögunum í ræktina, sem er kannski ekki frétt vikunnar, nema fyrir það að mér leið eins og sardínu í mjög svo þröngri dós sem hefur…

ANDLEGA HLIÐIN: 10 skref til að auka viljastyrkinn

Screen Shot 2013-01-05 at 18.40.02

Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Þetta máltæki er bæði satt og rétt því það er fátt sem kemur í veg fyrir að draumar rætist ef nægur vilji er fyrir hendi. Í raun vilja margir meina að viljastyrkurinn sé undirstaða allrar velgengni í lífinu og á honum kemstu lengra en gáfum, útliti, erfðum…

HEILSA: Æji troðið þessum áramótaheitum uppí %&/(*!

jol

Ég var að enda við að  klára það sem eftir var af jólasmákökunum, konfektinu og sænsku kókosbollunum sem ég skolaði niður með síðasta kaflanum í jólabókinni. Er nú södd andlega og líkamlega og hugsa með tilhlökkun til heilsusamlegri lífsmáta en þann sem ég hef ástundað síðasta mánuðinn. Viljandi hef ég gúffað svo mikið í mig…

HEILSA: 10 boðorð til að bæta heilsuna árið 2013

hreyfasig

Það er alltaf auðveldara að byrja á hollum háttum í byrjun árs en svo er það galdurinn að halda þeim áfram. Mikilvægt er að hafa þetta ekki of flókið. Einföldum hlutum er auðveldara að halda áfram. Hér eru 10 boðorð sem við fengum hjá Guðbjörgu Finnsdóttur íþróttakennara. 1. Vatn! Drekktu vatn. Fáðu þér vatnsglas um leið…

HEILSA: 10 leiðir til að fá ekki „ógeð“ á sjálfri sér fyrir jól

Daily-Health-Fitness-Tips

Já, ert þú ekki ein af þessum sem ert komin með ógeð á sjálfri þér „fyrir jól“? Heyrði þetta í útvarpinu í morgun og minnti mig á nákvæmlega mig í þessum sporum fyrir nokkrum árum! Nú eru 9 dagar til jóla og ýmislegt sem maður getur „gert“ og „ekki gert“ þangað til kirkjuklukkurnar hringja inn…