Færslur höfundar: Eva Gunnbjörnsdóttir

Eva Gunnbjörnsdóttir
Eva er menntuð sem sviðslistakona úr Fræði og framkvæmd frá Listaháskóla Íslands og menningarmiðlari úr Hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Eva er líka mikill fagurkeri enda fædd í vogarmerkinu.

FRÉTT: Alma Rut biðlar til almennings – Fólk sefur úti á götu!

bekkur

Alma Rut Lindudóttir hefur barist fyrir málefnum utangarðsfólks og kynnt sér vel þau úrræði sem eru í boði. Málefnið á hug hennar og hjarta enda var Loftur Gunnarsson, útigangsmaður og mikill öðlingsdrengur, vinur hennar. Loftur lést fyrir aldur fram en Alma segir að hefði hann fengið betri þjónustu og meiri aðhlynningu hefði hann ekki þurft…

BÍÓ: Fjallakvikmyndaátíð í Bíó Paradís í kvöld OG annað kvöld!!

banff

Ég fór á fjallakvikmyndahátið í Bíó Paradís áðan og það var geggjað! Um er að ræða tvö kvöld svo að þú ert ekki búin að missa af öllu fjörinu en það er Íslenski alpaklúbburinn í samstarfi við Bíó Paradís, Íslenska fjallaleiðsögumenn og 66° Norður sem halda hina árlegu BANFF fjallakvikmyndahátíð – 1. og 2. maí….

Verðlaunasýningin Walking Mad: Mikil orka á sviðinu, auðvelt að hrífast með

Walking-Mad-I

Síðustu helgi var frumsýning á Walking Mad í Borgarleikhúsinu en það er ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN sem flytur verkið á þessu fertugasta starfsári flokksins! Það er Johan Inger, fyrrverandi leikrænn stjórnandi Cullberg Balletflokksins og meðlimur í Konunglega balletflokknum í Svíþjóð og Netherlands Dance Theatre, sem hefur skapað glæsilegt verk fyrir níu dansara. Dansverkið er sett fram við…

KVIKMYNDIR: Hver var Hannah Arendt?

HannahArendtFix

Um þessar mundir er enn í sýningu kvikmynd um Hönnu Arendt í Bíó Paradís, en myndin var svo vinsæl á Þýskum kvikmyndadögum að ákveðið var að hafa hana áfram í sýningu. Hún fjallar um heimspekinginn og „fjölfræðinginn” Hönnu Arendt sem skók heiminn með því sem hún kallaði „lágkúrulega illsku“. Arendt var frá Þýskalandi og af…

BÍÓ: The Croods í Laugarásbíó – Ævintýraheimur lifnar við!

croods-review

Um páska gefst fólki tækifæri til þess að slappa af, borða fullt af súkkulaði, lesa bækur og auðvitað fara í bíó! Og það er einmitt það sem ég gerði um páskana með henni dóttur minni sem er níu ára.  Í Laugarásbíó er verið að sýna fjölskyldumyndina Croods. Myndin fjallar um hellisbúa sem einn dag neyðast…

Karma fyrir fugla: Stórkostlegt verk um konur!! Skrifað af konum

karma

Karma fyrir fugla er nýtt leikrit, frumraun þeirra Kristínar Eiríksdóttur og Kari Ósk Grétudóttur sem leikskálda en þær eru myndlistamenntaðar. Áður hefur Kristín m.a. gefið út ljóðabækur og skáldsöguna Hvítfeld (sem hefur fengið góða dóma). Þessar ungu konur skrifa hér magnaðan texta. Það má segja að verkið sé mjög hugrakkt, það er afar beitt og…

Fyrirheitna landið: Hilmir heldur verkinu á háu plani

Í Þjóðleikhúsinu er verið að sýna verk eftir þekkt breskt leikskáld, Jez Buttersworth, sem heitir á frummáli „Jerusalem“ eftir ljóði Williams Blake. Í uppsetningu Þjóðleikhússins er verkinu: „Fyrirheitna landið – Jerúsalem“ leikstýrt af Guðjóni Pedersen en hann er reyndur leikstjóri sem t.d. leikstýrði verðlaunaverkinu Afmælisveislunni. Fyrirheitna landið – Jerúsalem hefst á því að kynna til…

LEIKHÚS: Macbeth í Þjóðleikhúsinu – Mögnuð tilraunakennd klassík!

mogb

Ég fór á Macbeth í uppsetningu Þjóðleikhússins um helgina sem leið. Það er skemmst frá því að segja að hér er um að ræða magnað listaverk! Í fyrsta lagi er verkið eitt áhrifaríkasta leikrit fyrr og síðar og af mörgum talið vera það besta sem Shakespeare skrifaði. Texti verksins er margslunginn og þýðingarmikill og innihald…

FRÉTT: MAC gefur 2.5 milljónir til styrktar HIV samtaka Íslands – VIVA GLAM!

ricky-martin-nicki-minaj-viva-glam

1. desember er alþjóðlegur baráttudagur gegn HIV. Snyrtivörufyrirtækið MAC hefur verið stór styrktaraðili forvarnarstarfsins gegn HIV-veirunni allt frá árinu 1994 en allur hagnaður af Viva Glam gloss og varalit rennur í forvarnarsjóð um heim allan. Í dag gefur snyrtivörufyrirtækið MAC ennfremur 2,5 milljónir  til samtakanna HIV-Íslands sem skiptir sköpum fyrir fræðslustarf hér á landi!! Peningarnir söfnuðust í gegnum sölu…

LEIKHÚS: Börnin hefja leitina að jólunum í Þjóðleikhúsinu!

leitin að jólunum

Leitin að jólunum er sýnt í Þjóðleikhúsinu áttunda árið í röð. Þetta bráðskemmtilega barnaleikrit er eftir myndlistarmanninn og rithöfundinn Þorvald Þorsteinsson en hann samdi m.a. bækurnar um Blíðfinn og ævintýrasöngleikinn Skilaboðaskjóðuna. Sýningin Leitin að jólunum hefur verið vinsæl í mörg ár en hún hlaut Grímuverðlaun sem besta barnasýning leikársins 2006. Leitin að jólunum hefur verið…