UPPSKRIFT: Speltpönnukökur með hlynsírópi í brönsinn og bústaðinn

Allir elska dúnmjúkar og volgar amerískar pönnukökur. Hvort sem það eru amma og afi, mamma og pabbi, karlinn eða krakkarnir, þú skapar þér alltaf vinsældir um leið og ilmurinn fyllir kotið og sírópið er dregið fram.

Það besta er að þessar eru bráðhollar og allir geta notið þeirra með mjög góðri samvisku. Svo er bara spurning um smekk hvað er sett ofan á.

INNIHALD

  • 100 g spelt
  • ½ tsk vínsteinslyftiduft
  • 1 egg
  • 1 msk ólífuolía, helst lífræn
  • 3 dl mjólk eða sojamjólk

Blandið þurrefnum saman, hrærið saman eggi, ólífuolíu og mjólk í aðra skál, hellið síðan út í þurrefnin og hrærið vel.

Steikið á vel heitri pönnu í ca. 30 sek á hvorri hlið (hafið að meðalstærð, ekki íslenskri pönnukökustærð). Úr þessu fást um það bil 10 pönnukökur. Ef margir eru samankomnir í bústaðnum má margfalda uppskriftina.

Svo má alveg sleppa sér í „vitleysuna“ og setja allskonar bæði út í deigið eða ofan á. T.d. kanil, bláber, banana, súkkulaði… eða jafnvel smá Nutella.

Nammmmmm…..

 

Höfundur: Pjatt

Pjatt
Pjattrófurnar eru nokkrir kvenkyns fagurkerar á öllum aldri sem sérhæfa sig á ýmsum sviðum. Við skrifum aðallega það sem okkur finnst fallegt, skemmtilegt eða lífsbætandi með einum eða öðrum hætti og gefum þér og hvor annarri góð ráð. Þú mátt líka endilega senda okkur póst því okkur finnst svo gaman að fá lesendabréf, spurningar, ábendingar og fleira. Netfangið er: pjattrofurnar (hja) pjattrofurnar.is – og endilega finndu okkkur á Facebook! – facebook.com/Pjattrofur