Rauðar varir eru einstaklega fallegar á veturnar og geta gefið okkur öllum klassískt og flott útlit.
Það sást mikið af kirsjuberjarauðum vörum í bland við hreina og fallega húð, og látlausa augnförðun, á sýningarpöllunum fyrir haust/vetrartískuna 2012.
Ábending:
Til að rauði varaliturinn haldist sem best á er gott að setja örlítinn hyljara yfir varirnar, móta þær með blýanti og fylla svo að lokum upp í með varalitnum. Síðan tekurðu þurrku og „dúmpar“ yfir litinn eða klemmir varirnar laust saman yfir þurrkuna til að fjarlægja auka olíur í litnum. Þá eru einnig minni líkur á að varaliturinn smyrjist út um allt.
Flottir rauðir varalitir fyrir veturinn:
Frá MAC í Lady Danger
Bobbi Brown í Red #10
Rouge varalitir frá Dior.
Finndu þinn uppáhaldslit og vertu klassísk í vetur!



































