Natalie Portman er að rifna úr hamingju þessa dagana en hún og unnusti hennar (nú eiginmaður) Benjamin Millipied giftu sig nú um helgina að Gyðingasið.
Athöfnin fór fram í Big Sur Kaliforníu og giftu þau sig við sólarlag þannig að það var afarið að rökkva þegar leið á athöfnina og kerti og seríur lýstu umhverfið en athöfnin fór fram úti og var falleg og innileg.
Natalie var í flottum kjól sem náði henni að hnjám og hafði blómsveig á höfði. Natalie og Benjamin kynntust við tökur á kvikmyndinni „Black Swan“ og eiga þau soninn Aleph sem er orðinn fjórtán mánaða gamall. Hjónin eru alsæl með daginn sem var alveg eftir þeirra höfði og innihélt veislan aðeins nána gesti hjónanna.
Það er greinilegt á myndunum að dagurinn hefur verið frábær og að brúðhjónin, Natalie og Benjamin, skemmtu sér konunglega.
_______________________________________________________



































