SNYRTIVÖRUR: YSL með byltingarkennd krem á markað!

YSL hefur komið afar sterkur inn með snyrtivörur á síðustu tveimur árum að mati okkar Pjattrófa og eigum við margar eftirlætisvörur frá þessu merki.

Til dæmis er Touche Éclat hyljarinn ómissandi fyrir allar pjattrófur og Teint Radiance farðinn er með þeim allra bestu sem við höfum prófað.

Nú hefur YSL sett á markað nýja línu, Forever Youth Liberator, sem vinnur gegn öldrun húðarinnar. Línan inniheldur augnkrem, serum, andlitskrem fyrir þurra og venjulega húð, hreinsikrem og lotion.

Um er að ræða byltingarkennda húðvöru sem sýnir strax mikinn árangur. Eftir 100 ára rannsóknir og sjö nóbelsverðlaun hafa sérfræðingar Yves Saint Laurent kortlagt yngingarlyklana, glycans, í húðinni en þetta er í fyrsta skipti sem glycobiology er notað til snyrtivöruframleiðslu.

Við notkun á Forever Youth Liberator verður húðin meira ljómandi og á sjö dögum minnka hrukkur til muna. Á einum mánuði endurmótast húðin og þú tekur vel eftir muninum.  Augnkremið, dagkremið og serumið er afar létt viðkomu og smýgur vel inn í húðina.

Umbúðirnar eru sérstakar og flottar, mjög ‘fashion’ eins og allt sem frá YSL kemur og því skemmtilegt að horfa á þær og handleika.

Hér má svo horfa á myndband sem útskýrir nánar hvernig þessi glycan hafa jákvæð áhrif á húðina:

YouTube Preview Image

 

Höfundur: Pjatt

Pjatt
Pjattrófurnar eru nokkrir kvenkyns fagurkerar á öllum aldri sem sérhæfa sig á ýmsum sviðum. Við skrifum aðallega það sem okkur finnst fallegt, skemmtilegt eða lífsbætandi með einum eða öðrum hætti og gefum þér og hvor annarri góð ráð. Þú mátt líka endilega senda okkur póst því okkur finnst svo gaman að fá lesendabréf, spurningar, ábendingar og fleira. Netfangið er: pjattrofurnar (hja) pjattrofurnar.is – og endilega finndu okkkur á Facebook! – facebook.com/Pjattrofur