Hjartaknúsarinn Robert Pattinson er búinn að fá nóg eftir að Kristen viðurkenndi framhjáhaldið sem lesa má um hér.
Hvítur sendibíll sást keyra frá heimili þeirra í Los Angeles í gær og var hann fullur af dóti frá drengnum. Robert er gersamlega niðurbrotinn eftir framhjáhaldið en aðallega reiður út í Kristen. Náinn vinur hans segir að hann sé ekki viss um það að þau nái að leysa málin.
Kristen er að sögn vina niðurbrotin eftir þetta og elskar Rob meira en allt annað. Hún segir að þetta hafi ekki náð lengra en koss með leikstjóranum- einungis stundarbrjálæði.
Það eru án efa margar stúlkur sem bíða spenntar eftir að sjá hvort Robert fyrirgefi Kristen eða ekki en hann verður ekki í vandræðum að finna sér aðra ljúfa og góða stúlku.




























