HOLLYWOOD: Gisele skartar óléttubumbu á ströndinni

Ofurfyrirsætan Gisele Bundchen sást á dögunum á ströndinni í Costa Rica með óléttubumbu.

Sögusagnir hafa verið á kreiki um að fyrirsætan væri með barni en Gisele hefur ekki enn staðfest neitt.

Þessi brasilíska bomba var í ofurlitlu bikini með son þeirra Tom Brady. Mæðginin léku sér saman með skóflu og fötu í sandinum og virtist fyrirsætan alsæl með lífið.

Það fer ekki á milli mála þegar ofurkroppur eins og Gisele er ólétt þar sem fyrirsætan er í toppformi en hún hefur reynt hvað hún getur til þessa að fela óléttukúluna.

Þá er bara spurning hvenær settur er dagur hjá dömunni?

 

Höfundur: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir

Rannveig Jónína Guðmundsdóttir
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.