TÍSKA: Fótósjoppuð Kate Middleton á forsíðu Marie Claire

Marie Claire South Africa hefur gerst svo djarft að setja Hertogaynjuna Kate Middleton á forsíðu sína og hvergi hefur verið sparað í notkun ‘fótósjopp’.

Kate hefur ekki enn samþykkt að sitja fyrir í tísku – eða glanstímaritum og því er óhætt að segja að þetta er umdeild ákvörðun ritstýru blaðsins Aspasia Karras sem útskýrir þessa ákvörðun þannig að Kate sé án nokkurs vafa nýjasta „style icon“ heimsins og ákvað hún því að gera blað tileinkað aðdáendum hertogaynjunnar.

Hvort sem þetta er tileinkað aðdáendum Kate eða ekki þá verður að segjast að þetta sé varasöm ákvörðun hjá ritstýrunni sem á án nokkurs vafa eftir að fá blendin viðbrögð.

Höfundur: Pjatt

Pjatt
Pjattrófurnar eru nokkrir kvenkyns fagurkerar á öllum aldri sem sérhæfa sig á ýmsum sviðum. Við skrifum aðallega það sem okkur finnst fallegt, skemmtilegt eða lífsbætandi með einum eða öðrum hætti og gefum þér og hvor annarri góð ráð. Þú mátt líka endilega senda okkur póst því okkur finnst svo gaman að fá lesendabréf, spurningar, ábendingar og fleira. Netfangið er: pjattrofurnar (hja) pjattrofurnar.is – og endilega finndu okkkur á Facebook! – facebook.com/Pjattrofur