HEIMILI: Náttborð með stórum og flottum karakter

Hef aldrei verið sérstaklega hrifin af þessum venjulegu náttborðum

Sérstaklega ekki þessum dæmigerðu amerísku náttborðum sem eru stór, þung og í kántrý stíl…þú veist hvað ég meina. Þess vegna ískraði örlítið í mér þegar ég sá þessa hugmynd. Þetta er bara fab! Brjálæðislega smart hugmynd!

Nú er bara að fara og þræða antíksölurnar og leita af gömlum flottum ferðatöskum!

Takið eftir speglinum ofan á töskunum, ótrúlega flott, þvílíkur karakter líka!

Höfundur: Guðrún J. Halldórsdóttir

Guðrún J. Halldórsdóttir
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Hún bjó í Flórens á meðan náminu stóð og hreinlega elskar allt sem tengist Ítalíu! Matinn, menninguna og lífsstílinn. Guðrún hefur margra ára reynslu við að hanna íbúðir, veitingahús og hótel. Hennar helstu áhugamál eru hönnun, tíska, matargerð og gömul húsgögn með sál. Eins rekur hún Mio-design en þar er boðið upp á hönnun og/eða ráðgjöf fyrir heimili og eins hluti hannaða úr íslenskum efnum fyrir heimilið. Guðrún er sporðdreki og Tígur í Kínversku stjörnuspánni.