
Katie Holmes lagði mikið á sig til að eiginmanninn myndi ekkert gruna á meðan að hún skipulagði skilnaðinn.
Leikkonan notaði meðal annars einnota farsíma til að hafa samband við lögfræðinga sína og var það náinn vinur hennar sem lét hana fá símana.
Katie vildi ekki að Tom né starfsfólk þeirra grunaði hvað hún hafði í hyggju en hún hafði þegar ráðið þrjú lögfræðiteymi í þremur mismunandi ríkjum áður en hún sótti um skilnaðinn.
Gamall vinur Tom segir að hann hafi valið Vísindakirkjuna fram yfir dóttir sína og Katie hafi verið búin að fá nóg. Hann telur einnig að sá sem er yfir kirkjunni hafi þrýst á Tom að gera sáttmála vegna skilnaðarins svo fljótlega.



























