ÓSKALISTINN: Marta Jónsdóttir – Dreymir um ljósa Chanel tösku

Marta Jónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, hefur bæði fágaðan og vandaðan smekk.

Við fengum að vita hvað er á óskalistanum hennar Mörtu og það er ekki um að villast, daman er sannkallaður hefðarköttur og fagurkeri fram í fingurgóma.

Skórnir

Klassískir svartir Christian Louboutin hælar

Fríið

Positano á Ítalíu. Paradís á jörðu.

Kjóllinn

Ég segði ekki nei við þessum gullfallega kjól frá Ellu í ljósbláu.

Taska

Mig dreymir um ljósa Chanel tösku – þessi myndi alveg duga!

 

Kökurnar

Makkarónur frá Ladurée í Frakklandi. Pistasíu, sítrónu, karamellu og rósablaða eru guðdómlegar.

Fyrir börnin

Sumarlegur blazer jakki frá Jacadi fyrir strákana mína.

Snyrtivaran

Þetta sólarpúður frá Bobbi Brown.

Uppáhalds veitingastaðurinn?

The Wolseley í London.  Alltaf fullkominn hvort sem er í morgunmat, hádegismat, high tea eða kvöldmat.

Höfundur: Pjatt

Pjatt
Pjattrófurnar eru nokkrir kvenkyns fagurkerar á öllum aldri sem sérhæfa sig á ýmsum sviðum. Við skrifum aðallega það sem okkur finnst fallegt, skemmtilegt eða lífsbætandi með einum eða öðrum hætti og gefum þér og hvor annarri góð ráð. Þú mátt líka endilega senda okkur póst því okkur finnst svo gaman að fá lesendabréf, spurningar, ábendingar og fleira. Netfangið er: pjattrofurnar (hja) pjattrofurnar.is – og endilega finndu okkkur á Facebook! – facebook.com/Pjattrofur