Heimildir vestanhafs segja að samkvæmt kaupmálanum sem Katie Holmes skrifaði undir þegar hún giftist Tom Cruise fái hún lítið sem ekkert út úr skilnaðinum nema það sem hún kom sjálf með inn í hjónabandið.
Nánir vinir leikkonunnar segja einnig að hún hafi ekki farið inn í þetta samband peninganna vegna -hún sé fullfær um að vinna fyrir sér sjálf.
Það eina sem að Katie fer fram á er að fá fullt forræði yfir dóttir þeiira Suri og það gæti reynst þrautin þyngri þar sem að Tom er með sterkan her lögmanna sér við hlið sem hafa séð um skilnaði hans áður.
Þetta virðist sýna það og sanna að Katie er ekki að sækja um skilnað fyrir peninganna og samkvæmt heimildum var hjónabandinu lokið fyrir nokkru síðan en Katie ákvað að taka af skarið og sækja um skilnaðinn.



































