Afmælisbarnið Tom Cruise flaug frá Íslandi í nótt… Katie er komin til New York og allir fjölmiðlar heims eru á kafi í málinu.
Hún kemur ekki moldrík út úr skilnaðinum og ástæða þess að hún fór frá Tom mun vera Vísindakirkjan. Hann sá dóttur þeirra Suri aldrei í friði og gagnrýndi hana fyrir allt og ekkert. Svo harður var hann í trúnni að Katie sá sér þann kost vænstan að fara frá Tom. Annað væri ekki gott fyrir barnið.
Leikkonan sást svo í New York í gær þar sem að hún var að dæma í þáttunum Project Runway: All-Stars 2.
Katie var ekki með giftingarhringinn sinn á vinstri baugfingri þegar papparassarnir náðu að smella myndum af henni en nú sem ávallt er setið um þær mæðgur, Katie og Suri.
Hér að neðan má sjá myndasafn af fyrrverandi frú Cruise á leiðinni af tökustað umkringd papparössum og aðdáendum… með engann hring.
__________________________________________________________________




































