HEIMILI: Hráir veggir, plasma sjónvarp og rauðir fylgihlutir

Hér erum við með yndislega kósý og fallega 180 fermetra íbúð í Stokkhólmi…

Þarna fá hráir veggir að njóta sín á móti módern húsgögnum. Eigendurnir eru miklir lestrarhestar og una sér vel í sérútvöldum lestrarhornum víða í íbúðinni. Takið eftir hvíta mjúka stóra hægindastólnum hjá bókahillunum. Bókahillurnar eru undir súð og nýtist sá veggur mjög vel. Einnig er einn glugginn í eldhúsinu notaður sem útsýnisgluggi. Þar eru tveir púðar til að sitja á og njóta útsýnisins með rjúkandi kaffibolla sér við hönd. Ekki slæm byrjun á morgni!

Svefnherbergið er einstaklega kósý og rúmgott. Það er undir súð og með skemmtilegri mynd fyrir ofan rúmið en þar segir „remember to kiss me good night“ Bara krúttlegt!

Rauðu flísarnar í eldhúsinu setja algjörlega sitt mark á eldhúsið. Skemmtilegar og pínu æpandi sem gerir eldhúsið hressilegra og einnig nútímalegt. Þau nota svo rauða litinn inn á baðherbergin líka með fylgihlutunum.

Hlýleg og smart hönnun

Höfundur: Guðrún J. Halldórsdóttir

Guðrún J. Halldórsdóttir
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Hún bjó í Flórens á meðan náminu stóð og hreinlega elskar allt sem tengist Ítalíu! Matinn, menninguna og lífsstílinn. Guðrún hefur margra ára reynslu við að hanna íbúðir, veitingahús og hótel. Hennar helstu áhugamál eru hönnun, tíska, matargerð og gömul húsgögn með sál. Eins rekur hún Mio-design en þar er boðið upp á hönnun og/eða ráðgjöf fyrir heimili og eins hluti hannaða úr íslenskum efnum fyrir heimilið. Guðrún er sporðdreki og Tígur í Kínversku stjörnuspánni.