Söngkonan Fergie er á forsíðu tímaritsins Self með svakalega magavöðva en þess má geta að skvísan er 37 ára gömul -hvað er að frétta?!
Í viðtalinu talar hún meðal annars um eiginmann sinn Josh Duhamel og segir frá því að hann eldi besta lasagna sem hún hefur smakkað og til að það sé jafnvægi á heimilinu þá vaskar hún upp ef hann eldar.
Á laugardögum fara þau saman í messu og síðan út að borða en Fergie finnst yndislegt að hlusta á Josh syngja í messu. Henni finnst frábært að næra andann með því að fara í kirkju, fá sér síðan gott vín með matnum og slaka á – eins og góðir kaþólikkar gera!
Black Eyed Peas eru í hléi núna en Fergie segist hafa þurft að taka sér frí sem söngkona, bæði með BEP og sem sólólistamaður.
Það var kominn tími á smá „me time“ og samveru með eiginmanninum en henni finnst mikilvægt að rækta hjónabandið, fjölskylduna og vinina.
„Það verður allt að vera í jafnvægi, ferillinn og fjölskyldan, ef það er í góðu lagi þá líður mér best,“ segir Fergie og bætir því við að hún sé gríðarlega metnaðarfull þegar kemur að framanum og því sé mikilvægt að hafa gott jafnvægi þarna á milli til þess að allt fari ekki úr skorðum.
Hér að neðan má sjá myndir úr tímaritinu og nokkrar vel valdar af þeim hjónakornum.





































