SNYRTIVÖRUR: HR Hydra Collagenist maskinn er mjúkur eins og silki

Það sem húðin okkar þarfnast umfram annað til að viðhalda teygjanleika og fegurð, er raki.

Hydra Collagenist rakamaskinn frá Helenu Rubinstein er unaðslega nærandi og mjög rakagefandi.

Það er einskonar silkiáferð á maskanum og þegar þú ert búin að bera hann á þig verður húðin ofsalega mjúk og rakinn gerir húðina unglegri, mýkri og þéttari.

Notkunin á maskanum er einföld, setur hann á þig einu sinni til tvisvar í viku og notar þykkt lag af honum.

Á meðan hann vinnur á húðinni getur þú til dæmis naglalakkað þig en maskinn á að vera á í svona 10 mínútur sem er passlegur lökkunartími.

Gott er að nota púðlur eins og dóttir mín kallar það eða bómullapúða til að hreinsa maskann af, en annars er gamli góði þvottaklúturinn alltaf góður til síns brúks.

Hugsaðu vel um húðina í sumar og notaðu góða maska til að gefa henni meiri raka og þéttleika.

 

Höfundur: Sigrún Þöll

Sigrún Þöll
Sigrún Þöll er tölvunarfræðingur sem hefur gengið í gegnum súrt og sætt í lífinu en einblínir á það sæta. Er dellukona, tækjasjúk og fagurkeri af lífi og sál. Finnst gaman að því að hlaupa, hjóla, drekka kaffi, huga að heilsunni, prjóna, lesa, taka ljósmyndir, rækta garðinn sinn og fleira og fleira. Sigrún er fædd í vatnsberamerkinu og er rísandi sporðdreki.