Nýverið sendi naglalakkarisinn O.P.I frá sér ofurkrúttlega línu sem er tileinkuð engri annari en Mínu Mús (Minnie Mouse).
Línan samanstendur af rauðum og bleiktónuðum naglalökkum með glimmeri og fíneríi- í einu naglalakkinu eru meira að segja hjörtu, aðeins of smart!
Ég á litinn I’m all Ears… djúp bleikur með fullt af glimmeri í, afskaplega sumarlegur og sætur. Ég mæli með tveimur umferðum af lakkinu yfir neglurnar til þess að fá litinn dýpri og fallegri áferð og þegar lakkið er þornað þá er sniðugt að setja Top coat naglalakk yfir þá færðu ennþá meiri glans og liturinn endist lengur.
Þessi sett frá OPI eru ótrúlega skemmtileg og ef þú elskar einn litinn þá er gott að geta farið og keypt hann stærri líka. Hér er umfjöllun um annað æðislegt SPIDERMAN sett frá OPI.




























