HÖNNUN: Dýrðlegt og einstakt kökuskraut

Þetta skemmtilega kökuskraut sá ég hjá Visual hearts

..Alveg einstaklega flott og ekkert smá sniðugt en það er mjög einfalt að búa til svona sjálf!

Það sem þarf að gera er að taka nokkur leikfangadýr og gera gat á þau með því að skrúfa í magann á þeim- svo er grillspjóti stungið í gatið og dýrin spreyjuð í einhverjum skemmtilegum lit.

Ótrúlega lekkert!

____________________________________________________________________________________

Höfundur: Viktoria

Viktoria
Viktoría Hinriksdóttir er yngsta pjattrófan. Fædd í ljónsmerkinu árið 1994. Hefur áhuga á öllu sem tengist hreyfingu og íþróttum, mataræði, tísku og öðru sem gerir lífið fallegra, betra og skemmtilegra.