HEIMILI: Falleg og björt íbúð hjá ungum Dj

Þessa fallega íbúð er í Stokkhólmi, Svíþjóð og hér býr ungur Dj sem hefur augljóslega mikinn áhuga á tónlist.
Íbúðin er um 60 fermetrar og tveggja herbergja. Mjög fallega innréttuð og upprunarlega útlitið fær að halda sér í bland við nútímalega hönnunina. Skemmtilegt samspil þarna á milli og vel gert. Múrveggurinn er í algjöru uppáhaldi hjá mér og hann setur vissulega stóran svip á heildarmyndina. Arinninn er líka algjör gullmoli, fallegur og virkilega vel staðsettur.
Sjáðu bara…
Höfundur: Guðrún J. Halldórsdóttir
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Hún bjó í Flórens á meðan náminu stóð og hreinlega elskar allt sem tengist Ítalíu! Matinn, menninguna og lífsstílinn. Guðrún hefur margra ára reynslu við að hanna íbúðir, veitingahús og hótel. Hennar helstu áhugamál eru hönnun, tíska, matargerð og gömul húsgögn með sál. Eins rekur hún Mio-design en þar er boðið upp á hönnun og/eða ráðgjöf fyrir heimili og eins hluti hannaða úr íslenskum efnum fyrir heimilið. Guðrún er sporðdreki og Tígur í Kínversku stjörnuspánni.