HEIMILI: Gömul vörubretti fá nýtt hlutverk

Það er alltaf að færast í aukana að fólk nýtir gömul vörubretti og býr til aðra hluti úr þeim.

Hægt er að gera nánast hvað sem er úr þessu frábæra efni, bara nota hugmyndaflugið. Höfuðgafl á rúmið, nýtt sófaborð, garðstóll, myndarammi, standur fyrir plöntur, gólfefni og á veggi svo eitthvað sé nefnt.

Þetta kemur alveg frábærlega út og gaman að sjá hvað margir hlutir verða skemmtilegir. Frekar gróf áferð á móti til dæmis gleri og fallegri málningu er bara ‘sweet’. Auðvelt er líka að skella hjólum undir palletturnar og þá ertu komin með húsgagn á hjólum.

SNILLD! Skoðaðu myndirnar og sjáðu hvort þér detti ekki eitthvað sniðugt í hug…

Höfundur: Guðrún J. Halldórsdóttir

Guðrún J. Halldórsdóttir
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Hún bjó í Flórens á meðan náminu stóð og hreinlega elskar allt sem tengist Ítalíu! Matinn, menninguna og lífsstílinn. Guðrún hefur margra ára reynslu við að hanna íbúðir, veitingahús og hótel. Hennar helstu áhugamál eru hönnun, tíska, matargerð og gömul húsgögn með sál. Eins rekur hún Mio-design en þar er boðið upp á hönnun og/eða ráðgjöf fyrir heimili og eins hluti hannaða úr íslenskum efnum fyrir heimilið. Guðrún er sporðdreki og Tígur í Kínversku stjörnuspánni.