Ameríkaninn klikkar sjaldan hvað varðar djúsí matargerð! Reyndar myndi margur Amerískur matur teljast í það óhollasta en það er allt í góðu að „tríta“ sig á laugardegi með einhverju eins og einföldum og bragðgóðum Sloppy Joe.

Ég fann þessa uppskrift, prófaði í gær… og varð ekki svikin!
Hráefni (fyrir 4-5):
500 g nautahakk
1/2-1 laukur
2 hvítlauksrif
1 græn paprika (má sleppa)
1/2 bolli tómatsósa úr dós (af hökkuðum tómötum)
1 dl tómatpúrré (paste)
3 msk venjuleg tómatsósa
2-3 msk sojasósa
20 g hrásykur (mér fannst betra að setja minna)
5 hamborgarabrauð
Rifinn ostur eftir smekk
Aðferð:
Brúnið lauk, hvítlauk, papriku og hakk á pönnu við frekar háan hita. Takið safann af, og bætið tómatsósum, tómatpúrré, sojasósu og hrásykri saman við og látið malla í um 5 mínútur. Gott er að krydda með salti, pipar, hvítlauksdufti og bæta örlitlum kjötkrafti saman við. Færið blönduna yfir í pott og látið krauma við hægan hita í 10-20 mínútur og hrærið reglulega í.
Hitið brauðin í ofni og setjið svo 2 msk af blöndunni í eitt brauð og smá rifinn ost ofan á. Berið fram t.d. með salati, steiktu grænmmeti eða ofnfrönskum.



























