Börn Hollywood stjarnanna eru að verða sífellt vinsælla myndefni og er oft slegist um að fá þau í auglýsingaherferðir fyrir ýmiskonar verkefni og eru papparassarnir einnig duglegir að mynda þau.
Tvíburar Jennifer Lopez hafa meðal annars setið fyrir með mömmu sinni í auglýsingaherferð fyrir Gucci.
Suri Cruise dóttir Katie Holmes og Tom Cruise er þekkt fyrir það að vera nánast alltaf í kjólum og háum hælum og skvísan er ekki nema fimm ára gömul!
Klæðaburður þeirra er gagnrýndur alveg jafn mikið og klæðaburður foreldra þeirra en oft á tíðum eru börnin í rándýrum merkjafötum og oftar en ekki gríðarlega smart.
Hér að neðan má sjá myndagallerý með myndum af börnum fræga fólksins.

















































